Lyfjafræðingur / ráðgjöf um næringu í æð
Viltu vinna á skemmtilegum vinnustað með fjölbreytt verkefni? Fórst þú í lyfjafræði til að vinna náið með öðrum heilbrigðisstéttum? Hefur þú áhuga á að vinna í teymi fólks sem brennur fyrir því sem það er að fást við á hverjum degi? Þá gætum við verið með rétta starfið fyrir þig.
Lyfjaþjónusta er að leita að öflugum lyfjafræðingi með sterka þjónustulund og færni til að móta nýtt verklag í samstarfi við aðra lyfjafræðinga sem og aðrar fagstéttir. Viðkomandi þarf að vera sveigjanlegur, framsækinn og tilbúinn að takast á við verkefni í mótun. Um er að ræða dagvinnu en með möguleika á stuttum vöktum um helgar.
Lyfjaþjónusta er stöðugt að þróa starfsemi sína til að bæta lyfjaöryggi og lyfjaumsýslu á Landspítala. Nú starfa um 40 lyfjafræðingar í fjölbreyttum verkefnum á Landspítala. Mikil framþróun er framundan og undirbúningur er hafinn við að móta verkferla og efla þjónustustig.
- Undirbúningur og útreikningur næringarblandna í æð
- Utanumhald á sjúklingum sem eru með næringu í æð
- Fagleg ráðgjöf til heilbrigðisstarfsfólks og skjólstæðinga um næringu í æð
- Samskipti við lyfjablöndun, aðrar deildir sjúkrahússins og aðrar heilbrigðisstofnanir
- Þátttaka og stuðningur við uppbyggingu og þróun þjónustuteyma
- Þátttaka í uppbyggingu gæðakerfis
- Verkefni innan klínískrar lyfjaþjónustu
- Þátttaka í þjálfun nema og nýrra starfsmanna eftir því sem við á
- Önnur tilfallandi verkefni
- Íslenskt starfsleyfi sem lyfjafræðingur
- Þekking á næringarfræði er kostur
- Reynsla af klínískri vinnu á spítala er kostur
- Skipulögð, nákvæm og öguð vinnubrögð
- Afbragðs samskiptahæfni og sveigjanleiki
- Öflugur liðsmaður og jákvætt viðmót
- Góð íslensku- og tölvukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, lyfjafræðingur, teymisvinna