Aðstoðarmaður sjúkraþjálfara á Landspítala við Hringbraut
Viltu vinna með skemmtilegu fólki og vera hluti af góðri liðsheild?
Við leitum eftir liðsmanni til að starfa sem aðstoðarmaður sjúkraþjálfara. Starfshlutfall er 100% og unnið er í dagvinnu. Æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir samkomulagi.
Í sjúkraþjálfun við Hringbraut starfa um 20 einstaklingar sem sinna fjölbreyttri og sérhæfðri endurhæfingu m.a. sjúklinga með hjartasjúkdóma, krabbamein, sjúklinga af barnadeildum, sjúklinga eftir skurðaðgerð auk almennrar endurhæfingar eftir veikindi. Við tökum vel á móti nýju samstarfsfólki og veitum góða aðlögun.
Vinnuvika starfsfólks í fullri dagvinnu er nú 36 stundir. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.
- Aðstoðar sjúkraþjálfara og sjúklinga við meðferð
- Eftirlit með sjúklingum í tækjasal
- Móttaka og skráning
- Umsjón og pantanir á rekstrarvörum og létt þrif
- Önnur tilfallandi verkefni
- Hæfni í mannlegum samskiptum og þverfaglegu samstarfi
- Sjálfstæði og skipulagshæfni í vinnubrögðum
- Metnaður og frumkvæði í starfi
- Sveigjanleiki og þolinmæði
- Góð íslenskukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, sérhæfður starfsmaður, aðstoðarmanneskja, almenn störf, teymisvinna