Yfiriðjuþjálfi Landspítala
Laus er til umsóknar staða yfiriðjuþjálfa Landspítala. Um er að ræða yfiriðjuþjálfa starfstöðva iðjuþjálfa á klínískum sviðum Landspítala.
Við leitum eftir kraftmiklum stjórnanda til að vera í forystu og leiða og efla starfsemi iðjuþjálfunar á Landspítala.
Yfiriðjuþjálfi Landspítala er leiðtogi og hefur þríþætta ábyrgð sem stjórnandi, þ.e.a.s. faglega ábyrgð, starfsmannaábyrgð og fjárhagslega ábyrgð. Næsti yfirmaður er framkvæmdastjóri bráða-, lyflækninga- og endurhæfingarþjónustu. Starfshlutfall er 100% og veitist starfið frá 1. júlí 2024 eða eftir nánara samkomulagi.
Starfið er ábyrgðarmikið og krefjandi og reynir á frumkvæði, stefnumótandi hugsun og samskiptahæfni. Viðkomandi mun starfa í nánu samstarfi við framkvæmdastjóra, aðra stjórnendur og samstarfsfólk.
- Fagleg ábyrgð á uppbyggingu, þróun og skipulagi iðjuþjálfunar á Landspítala
- Stuðlar að þekkingarþróun og kennslu og hvetur til vísindastarfa
- Fjárhagslega ábyrgð, þ.e. ábyrgð á rekstrarkostnaði og áætlanagerð á starfstöðvum einingarinnar
- Starfsmannaábyrgð, þ.e. ábyrgð á uppbyggingu mannauðs og daglegri stjórnun starfsfólks
- Stuðlar að öflugu þverfaglegu samstarfi, samstarfi á milli starfseininga og við deildir spítalans til hagsbóta fyrir sjúklinga og aðstandendur
- Íslenskt starfsleyfi iðjuþjálfa
- Farsæl starfsreynsla sem iðjuþjálfi
- Viðbótamenntun á háskólastigi sem nýtist í starfi er kostur
- Leiðtogahæfileikar og geta til að leiða umbótastarf og breytingar
- Færni í stjórnunarhlutverki, þ.e. fagleg ábyrgð, starfsmannaábyrgð og fjárhagsleg ábyrgð
- Reynsla af kennslu og vísindastörfum er kostur og sýn til framtíðar
- Jákvætt viðmót og framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum og teymisvinnu
- Frumkvæði og metnaður til að ná árangri
- Góð íslensku-, ensku- og tölvukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Í umsóknarformið skal skrá inn upplýsingar um:
- Fyrri störf, menntun og hæfni
- Félagsstörf og umsagnaraðila
Nauðsynleg fylgiskjöl:
- Vottað afrit af prófskírteinum og starfsleyfi
- Ferilskrá ásamt kynningarbréfi með rökstuðningi fyrir hæfni og sýn á starfið
Ákvörðun um ráðningu í starfið byggist á innsendum gögnum og viðtölum. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Yfiriðjuþjálfi, iðjuþjálfi, stjórnandi