Sumarstörf 2024 - Iðjuþjálfanemi
Við óskum eftir áhugasömum iðjuþjálfanemum í sumarvinnu á starfsstöðvum okkar á Landspítala.
Í boði eru fjölbreytt störf víða um spítalann. Hvar liggur þinn áhugi?
Ekki verða auglýst sumarstörf sérstaklega niður á deildir/ starfsstöðvar svo vinsamlega skráið óskir um deildir/ starfsstöðvar í reitinn "annað" neðst á umsóknareyðublaðinu og forgangsraðið þar sem númer eitt er fyrsta val.
Starfsstöðvarnar eru á bráðadeildum í Fossvogi og Hringbraut, öldrunarlækningadeildum á Landakoti, endurhæfingardeildum á Grensási, við geðendurhæfingu á Hringbraut, Kleppi og Laugarási.
Æskilegt er að geta hafið störf um miðjan maí 2024 eða eftir nánara samkomulagi. Starfshlutfall er 100% eða eftir samkomulagi.
Mikilvægt er að umsókn sé vel fyllt út og með umsókninni fylgi staðfest yfirlit yfir lokin námskeið með ECTS einingum.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
- Verkefni og ábyrgð eru mismunandi eftir lengd náms og í samráði við yfiriðjuþjálfa á starfsstöð
- Jákvætt viðhorf, frumkvæði og góðir samskiptahæfileikar
- Hæfni og geta til að vinna í teymi
- Góð íslenskukunnátta
- Einstaklingur þarf að hafa náð 18 ára aldri að lágmarki
Frekari upplýsingar um starfið
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Fyhlskjöl skulu vera í pdf formi.
Með umsókn skal fylgja:
- Staðfesting á um hversu mörgum ECTS einingum er lokið þegar störf hefjast.
- Starfsferilskrá þar sem nám og fyrri starfsreynsla er tilgreind.
Forsenda ráðningar sem háskólanemi hjá Landspítala er að viðkomandi skili staðfestum gögnum um námsframvindu um leið og þau liggja fyrir að loknu vormisseri.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum.
Starfsmerking: Heilbrigðisþjónusta, iðjuþjálfanemi