Námskeiðið er haldið í fyrirlestrasal Íslenskrar Erfðagreiningar, Sturlugötu 8, 101 Reykjavík miðvikudaginn 10. september 2025 kl. 13.00 til 16.00. Einnig er hægt að kaupa aðgang að streymi.
Fundarstjóri: Guðlaugur Eyjólfsson, framkvæmdastjóri Alzheimer samtakanna.
Dagskrá
12:45
Skráning
13.05
Sjúkdómar sem valda heilabilun. Hugræn einkenni og taugasálfræðimat á hugrænum einkennum.
Helga Eyjólfsdóttir, yfirlæknir minnismóttöku og Nína Sigrún Kristjánsdóttir, taugasálfræðingur, minnismóttöku.
14:15
Kaffihlé
14:35
Heilabilun og áfengisneysla
Eyþór Jónsson, læknir öldrunardeildum Landspítala.
15:15
Heilabilun, hjúkrun, umönnun virkni
Gunnhildur María Kildelund, deildarstjóri heilabilunardeildar Landakoti og Hjördís Halldóra Sigurðardóttir, forstöðumaður hjúkrunar í Hlíðarbæ.
15:45
Fyrirspurnir og umræður
Skráning fer fram í tölvupósti: heilabilunardagur@landspitali.is, og skal þar koma fram: Nafn og kennitala þátttakanda, hvort sótt er um streymi eða mætt er á staðinn (greitt á staðnum).
Ef ósk er um aðgang að streymi er millifært á reikning: 0513-26-95384, kt. 500300-2130 og vinsamlegast sendið kvittun á sama netfang. Ef vinnustaður greiðir fyrir starfsmann þarf einnig að koma fram nafn og kennitala viðkomandi stofnunar og hver er ábyrgur fyrir greiðslu.
Gjafapoki frá styrktaraðilum fyrir þá sem mæta á staðinn, meðan birgðir endast.
Lokadagur skráningar er 8. september 2025
Þátttökugjald er kr 6.000 staðgreitt
Hægt er að greiða með korti á staðnum