Endurhæfingarteymi krabbameinsgreindra á Landspítala, Krabbameinsfélag Íslands, Ljósið, Kraftur, Heilsustofnun NLFÍ og Reykjalundur hafa tekið höndum saman og boða til málþings um stöðu og stefnu endurhæfingar fólks sem greinst hefur með krabbamein.
Við hvetjum ykkur til þess að kynna ykkur dagskrána um þetta mikilvæga málefni og fjölmenna meðan húsrúm leyfir.
Aðgangur er ókeypis!