Almenn atriði
Markmið almennra verklagsreglna um lista yfir sjúklinga sem bíða eftir aðgerð/meðferð er að samræma sem mest ferli beiðna, skráningu og meðferð þeirra, þannig að kerfið sé skilvirkt, uppfylli þjónustumarkmið og gefi sem réttastar upplýsingar á hverjum tíma.
Nokkur skilgreiningaratriði varðandi biðlista
Vinnulisti: Þeir sjúklingar, sem verið hafa skemur en 3 mánuði á lista.
Biðlisti: Þeir sjúklingar, sem verið hafa lengur en 3 mánuði á lista.
Vinnulisti og biðlisti er auðvitað sami listinn, sem er skilgreindur á þennan hátt eftir biðtíma.
Eftirlitsbiðlisti
Þeir sjúklingar sem eru í reglubundnu eftirliti. Þeir eru ekki á hefðbundnum vinnulista/biðlista og teljast ekki með í útreikningum á biðtíma.
Meðalbiðtími eftir ákveðinni aðgerð / meðferð
Miðað er við alla sem eru á lista (vinnulista og biðlista) eftir viðkomandi aðgerð/meðferð. Tími reiknast frá skráningu á innlagnarbeiðni til þess dags að útreikningur fer fram.
Dæmi: Gerviliður í mjöðm, þindarslitsaðgerðir o.s.frv.
Meðalbiðtími í ákveðinni sérgrein
Miðað er við alla, sem eru á lista (vinnulista og biðlista) í viðkomandi sérgrein (t.d. bæklunarskurðlækningum). Tími reiknast frá skráningu á innlagnarbeiðni til þess dags að útreikningur fer fram.
Allir sjúklingar sem eru á vinnulista/biðlista skulu skráðir í tölvukerfi spítalans.
Ábyrgð
Yfirlæknir sérgreinar er endanlegur ábyrgðarmaður vinnulista/biðlista í greininni. Yfirlæknir tilnefnir ákveðinn umsjónarmann listans, sem sér um að hann sé í lagi á hverjum tíma skv. reglum viðkomandi sérgreinar. Umsjónarmaður listans getur verið t.d. deildarstjóri legudeildar, skrifstofustjóri sérgreinar eða ákveðinn ritari eftir því sem hentar á hverjum stað.
Upplýsingar á listann eru fengnar af innlagnarbeiðni og skulu vera í sem mestu samræmi við lágmarksskráningu vistunarupplýsinga landlæknisembættisins.
Hver sjúklingur er skráður á lista á ábyrgð ákveðins sérfræðings í viðkomandi sérgrein við spítalann og einungis sérfræðingar geta ákveðið að sjúklingur verði skráður á listann.
Hætti sérfræðingur störfum af einhverjum ástæðum er það á ábyrgð yfirlæknis í greininni að sjúklingum á vinnulista/biðlista viðkomandi sérfræðings sé boðin meðferð hjá öðrum aðila hafi slíkar ráðstafanir ekki verið gerðar af hlutaðeigandi sérfræðingi.
Forgangsröðun - innkallanir
Um forgangsröðun almennt gildir tímaröðun frá skráningardegi. Inn í forgangsröðun fléttast ýmsir þættir eins og alvarleiki sjúkdóms og/eða aðsteðjandi vandi annarra sjúkdóma, besta tímasetning að áliti sérfræðings, félagslegar aðstæður o.fl. Nauðsynlegt er að hver deild/sérgrein útfæri sínar eigin verklagsreglur við innkallanir, í samræmi við tilmæli lækningaforstjóra og skulu þær vera skráðar og öllum ljósar.
Viðhald biðlista
Biðlista skulu sérfræðingar yfirfara á 2 mánaða fresti í samráði við umsjónarmann listans.
Í janúar á ári hverju skulu allar beiðnir eldri en 1 árs yfirfarnar af viðkomandi sérfræðingi og þær staðfestar eða teknar af biðlista eftir því sem við á. Sjúklingi skal gerð grein fyrir stöðu sinni á biðlista.
Upplýsingar
Allar umsagnir frá spítalanum um biðlista einstakra sérgreina skulu koma frá yfirlækni viðkomandi sérgreinar nema að hann feli það öðrum.
Trúnaður
Áréttað er að biðlistar eru trúnaðarmál.
14.08.2002