1. júní 2002 tók Kristín Þorbjörnsdóttir hjúkrunarfræðingur við starfi deildarstjóra á deild 15, að Kleppi.
Kristín útskrifaðist frá hjúkrunardeild Háskóla Íslands, 1991.
Starfsferill hennar hefur verið eftirfarandi:
- Hjúkrunarfræðingur á geðdeild Landspítalans, Kleppi, deild 13 og 15; júní 1991- júlí 1994. Var aðstoðardeildarstjóri frá sept.1991 til júlí 1994.
- Hjúkrunarfræðingur á barnadeild Landspítalans og Sjúkrahúss Reykjavíkur: 1994-1997.
- Vann við afleysingar sem hjúkrunarforstjóri Heilsugæslu Vopnafjarðar veturinn 1997-1998.
- Hjúkrunarfræðingur geðdeild 13 Landspítala apríl 1998 - mars 2000.
- Deildarstjóri geðdeild 23 Landspítala mars 2000 - mars 2001.
- Verkefnastjóri öryggismála geðsviði LSH frá des. 2000. (60% starf).
- Hjúkrunarfræðingur á deild 33 C við Hringbraut. (40% starf).
Kristín er boðin velkomin til starfa við endurhæfingu á geðsviði og starfsmenn vænta góðs af samstarfi við hana.