Jenný Sigurlína Níelsdóttir, sjúkraliði á Laugarási meðferðargeðdeild, var heiðruð í flokknum Vinnustaðurinn okkar á ársfundi Landspítala sem fór fram í vor.
Jenný hefur starfað á Landspítala síðan 1980 og hefur verið á Laugarásnum í tæplega 30 ár. Jenný segir að það sem gerir góðan sjúkraliða sé fyrst og fremst jákvæðni og að þykja vænt um sjúklinga og samstarfsfólk sitt, auk þess sem gott viðmót og virðing fyrir starfinu sé lykilatriði.
Sjúkraliðar eru lykilstétt á Landspítala og starfa um 680 sjúkraliðar á ólíkum deildum spítalans. Starfssvið sjúkraliða getur verið mjög fjölbreytt og sérhæft en flestir sinna nærhjúkrun og eru því í miklum tengslum við sjúklinga.
Úr tilnefningu: „Jenný er klettur í starfsemi Laugarássins, hún er skipulögð og lausnamiðuð, hefur einstakt auga fyrir þörfum hvers einstaklings og mætir fólki þar sem það er statt og hvetur áfram.“
Heiðrað er í flokkum sem samsvara gildum spítalans: Umhyggja, fagmennska, öryggi og framþróun. Að auki er heiðrað í flokknum Vinnustaðurinn okkar þar sem heiðraðir eru traustir vinnufélagar sem gera vinnudaginn betri.
Fjölmargar tilnefningar bárust en það er ekki aðeins samstarfsfólk sem getur tilnefnt heldur einnig sjúklingar, aðstandendur og sjúklingasamtök.
Þeir einstaklingar sem voru heiðraðir í ár fengu verkið Á eftir listakonuna Ástu Fanneyju Sigurðardóttur.
Ásta Fanney er talin einn af fremstu gjörningalistamönnum landsins. Hún hefur sýnt og flutt verk sín á söfnum og hátíðum víða um heim og verður fulltrúi Íslands á Feneyjatvíæringnum í myndlist árið 2026 en tvíæringurinn er talinn einn mikilvægasti vettvangur samtímalistar á heimsvísu.
Verkið Á er prentverk í ótakmörkuðu upplagi en hvert verk er þó einstakt þar sem Ásta stimplar árfarveginn á hvert verk fyrir sig. Þar sem áin endar á hverju blaði tekur hún við á því næsta og þannig flæðir hún áfram í gegnum verkin. Verkið á rætur sínar í gjörningi sem Ásta sýndi á samtímalistasafninu í Tókýó árið 2023.