Kristrún er hjúkrunarfræðingur að mennt og með framhaldsnám í opinberri stjórnsýslu frá Háskóla Íslands.
Frá því Kristrún útskrifaðist sem hjúkrunarfræðingur vorið 1997 hefur hún átt farsælan og samfelldan starfsferil á Landspítala. Fyrstu árin við hjúkrun sjúklinga á gjörgæslu og vöknun en lengst af í stöðu gæðastjóra á skurðlækninga-, skurðstofu- og gjörgæsluþjónustu, einnig á hjarta-, æða- og krabbameinsþjónustu. Samhliða þessum störfum hefur hún frá árinu 2018 gegnt stöðu verkefnastjóra notendastýrðar hönnunar fyrir nýjan meðferðarkjarna Landspítala.
Kristrún hefur víðtæka reynslu og þekkingu á gæðastjórnun, umbótastarfi og úrvinnslu alvarlegra atvika í heilbrigðisþjónustunni. Hún hefur gegnt ýmsum nefndarstörfum innan og utan Landspítala, m.a. setið í Lyfjanefnd Landspítala, fagráði hjartahjúkrunar, gæðaráðum á skurðstofum og gjörgæslu og setið í nefndum innan Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga. Kristrún hefur einnig sinnt stundakennslu við Hjúkrunarfræðideild og Læknadeild Háskóla Íslands.
„Ég er þakklát fyrir það traust sem mér er sýnt að fá tækifæri til að leiða áframhaldandi uppbyggingu Brjóstamiðstöðvar. Örugg og skilvirk heilbrigðisþjónusta og uppbygging öflugs umbótastarfs hefur verið leiðarljós mitt í starfi á Landspítala. Á Brjóstamiðstöð vinnur teymi sérfræðinga og annarra starfsmanna sem hafa mikinn metnað til að byggja upp öfluga heildræna þjónustu við skimun fyrir brjóstakrabbameini og fyrir einstaklinga með sjúkdóma í brjóstum. Það eru mörg tækifæri til að bæta þjónustu við skjólstæðinga okkar á Brjóstamiðstöð og er ég full tilhlökkunar að taka þátt í því verkefni.“