Fimmtán einstaklingar fengu fálkaorðuna í gær við hátíðlega athöfn á Bessastöðum. Þar af voru tveir starfsmenn Landspítala.
Vilborg Guðbjörg Guðnadóttir geðhjúkrunarfræðingur fékk fálkaorðuna fyrir framlag til geðheilbrigðismála barna, unglinga og fjölskyldna.
Þórður Þórkelsson barnalæknir fékk fálkaorðuna fyrir framlag til nýburalækninga og barnagjörgæslu.
Þá var Guðrún Pétursdóttir lífeðlisfræðingur sæmd fálkaorðunni fyrir störf sín í þágu sjálfbærni, jafnréttis- og mannúðarmála. Guðrún er formaður Hollvina Grensásdeildar sem safna fé til tækjakaupa og endurbóta á húsnæði deildarinnar.
Á vef forsetaembættisins er hægt að nálgast lista yfir alla orðuhafana.
Meðfylgjandi myndir voru teknar af Eyþóri Árnasyni fyrir skrifstofu forseta Íslands.