Hermikennsla, kennsluaðferð sem hefur vaxið hratt innan heilbrigðisvísinda, nýtist hvoru tveggja nemendum heilbrigðisvísinda, sem og til símenntunar heilbrigðisstarfsfólks. Víða á vesturlöndum er litið á hermikennslu sem grunnstaðal í kennslu heilbrigðisstétta.
Hermikennsla er vel skilgreind og öguð kennsluaðferð, þar sem gjarnan er stuðst við tölvustýrða sýndarsjúklinga og líkt eftir raunverulegum aðstæðum í öruggu umhverfi. Þannig gefst þátttakendum tækifæri til að upplifa, sjá og reyna viðbrögð við margskonar lífsógnandi tilvikum, flóknum sem sjaldgæfum. Menntadeild Landspítala hefur verið leiðandi hér á landi í þróun hermikennslu.
HermÍs er framsækið setur, ætlað nemendum HÍ og starfsfólki Landspítala. Setrið samanstendur af fjórum margnota kennslurýmum og er staðsett á 2. hæð í Eirbergi við Eiríksgötu. Í Eirbergi er einnig til staðar setur hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideildar HÍ, alls um 500m2 til umráða fyrir verklega kennslu. HermÍs verkefnið er á margan hátt flókið og margþætt. Það er ekki bara verið að standsetja „mini-sýndarsjúkrastofnun“, heldur er samhliða verið á kerfisbundin hátt að byggja upp og samþætta kennslubúnað út frá stöðugri þarfagreiningu, um leið og verið er að fjölga leiðbeinendum í hermikennslu. Vel menntaðir hermileiðbeinendur eru ásamt aðstöðunni, lykilatriði svo vel megi til takast.
Í HermÍs er hægt að kenna og þjálfa nánast allt sem fram fer í klínísku starfi, hægt að stoppa kennsluna hvenær sem er, ræða og lagfæra, endurtaka eins oft og þörf er á, sem og auka eða minnka erfiðleikastig, allt eftir þörfum og getu þátttakenda. Með nýrri aðstöðu verður t.a.m. hægt að leggja enn frekari áherslu á kennslu og þjálfun í samskiptum og teymisvinnu, en ítrekað hefur komið fram í rannsóknum að samskiptabrestur í teymisvinnu er sá þáttur sem oftast fer úrskeiðis þegar atvik eiga sér stað í heilbrigðisþjónustunni.
Með tilkomu HermÍs er verið að gjörbylta möguleikum til verklegs náms á öllum sviðum heilbrigðisvísinda. Ætla má að þessir sameiginlegu snertifletir komi til með að auka gæði og efla öryggi sjúklinga. Þann 30. apríl næstkomandi verður HermÍs formlega opnað, og í kjölfarið nánar tiltekið 7. maí, verður lykil notendum boðið í heimsókn. Þar gefst tækifæri til að skoða þessa stórglæsilegu aðstöðu, hitta verkefnastjóra og forvitnast um starfsemi og mörguleika HermÍs.
Mikilvægt er að halda áfram á þeirri vegferð að byggja upp og efla alla umgjörð í tengslum við hermikennslu, sem ljóst er að muni vaxa enn frekar á komandi árum. HermÍs verkefninu er hvergi nærri lokið, fjölmörg verkefni eru framundan svo sem áframhaldandi þróun á kennsluaðferðinni, fjölgun hermileiðbeinenda og umsókn um alþjóðlega vottun á setrinu svo dæmi séu tekin. Framtíðin á Íslandi er svo sannarlega björt þegar kemur að hermikennslu í heilbrigðisvísindum.