Vegna ályktunar Krabbameinsfélags Íslands sem samþykkt var á ársþingi félagsins í dag, 6. júní 2020, vilja heilbrigðisráðuneytið og Landspítali koma eftirfarandi á framfæri:
Unnið er að breytingum á fyrirkomulagi skimunar fyrir legháls- og brjóstakrabbameini fyrir árslok 2020. Sem hluta af því verkefni hefur heilbrigðisráðherra ákveðið að fela Landspítala ábyrgð á skimun fyrir brjóstakrabbameini í samstarfi við Sjúkrahúsið á Akureyri frá lokum ársins 2020.
Landspítali hefur óskað eftir því að flutningi brjóstaskimunar til spítalans verði frestað til 1. maí 2021 vegna mögulegra tafa á afhendingu tækni- og tækjabúnaðar sem nauðsynlegur er til að sinna þjónustunni á nýjum vettvangi. Fari svo að ekki takist að tryggja framkvæmd brjóstaskimana með aðkomu annars aðila en Landspítala frá árslokum 2020 til 1. maí mun spítalinn tryggja að konum standi til boða hér eftir sem hingað til góð og örugg þjónusta.
Skimanir fyrir brjóstakrabbameini munu ekki falla niður og ekkert rof verður á þjónustu við umræddan hóp.