Karl Andersen hefur verið settur yfirlæknir Hjartagáttar í stað Davíðs O. Arnar sem hefur verið settur yfirlæknir hjartalækninga.
Karl er sérfræðingur í lyflækningum og hjartalækningum. Hann lauk embættisprófi frá Háskóla Íslands og var við sérfræðinám í lyflækningum og hjartasjúkdómum við Östra/Sahlgrenska sjúkrahúsið í Gautaborg í Svíþjóð. Hann lauk doktorsprófi frá Háskólanum í Gautaborg. Karl er prófessor í hjartalækningum við læknadeild Háskóla Íslands og hefur verið virkur í störfum Evrópusamstaka hjartalækna, sér í lagi á svið forvarna gegn hjarta og æðasjúkdómum. Hann hefur fjölbreytt áhugsvið í vísindarannsóknum, ekki síst á tengslum sykursýki og kransæðasjúkdóma.