Sérhæfð bráðageðdeild 32C, geðgjörgæsla, var formlega tekin í notkun í geðdeildarbyggingu Landspítala 30. maí 2014. Þar eru 10 rúm ætluð fólki með alvarleg geðræn veikindi. Hlutverk bráðageðdeildar er að annast móttöku, greiningu og meðferð bráðveikra einstaklinga sem sökum veikinda sinna eru taldir hættulegir sjálfum sér, umhverfi sínu eða öðrum. Bráðageðdeild veitir sérhæfða þjónustu fyrir bráðveika einstaklinga sem þurfa aukinn stuðning í öruggu umhverfi
Að frumkvæði þáverandi framkvæmdastjóri geðsviðs og núverandi forstjóra, Páls Matthíassonar, var í mars 2012 hafinn undirbúningur að því að koma bráðageðdeildinni á fót, meðal annars með nauðsynlegum húsnæðisbreytingum. Erlendir sérfræðingar voru fengnir til ráðgjafar um starfsemina og við þjálfun starfsfólks. Velferðarráðuneytið styrkti framkvæmdirnar en mest munaði um 40 milljónir króna sem söfnuðust í átakinu Á allra vörum á síðasta ári.

Eyrún Thorstensen er deildarstjóri og Halldóra Jónsdóttir yfirlæknir bráðageðdeildar 32C:
Halldóra: „Það er mjög mikilvægt að við erum búin að fá þessa deild. Hingað til hafa veikustu sjúklingarnir lagst inn á almennar deildir þar sem eru margir aðrir sjúklingar með mismunandi veikindi og oft hefur verið erfitt fyrir starfsfólk að mæta mismunandi þörfum. Á nýju deildinni getum við sinnt betur allra veikasta fólkinu, því sem á í mestum erfiðleikum með að vera innan um annað fólk.“
Söfnunarátakið á Allra vörum gerði gæfumuninn. Þökk sé því fyrir að bráðageðdeildin varð til. Á allra vörum er kynningar- og fjáröflunarátak um ákveðið málefni. Gróa Ásgeirsdóttir, Guðný Pálsdóttir og Elísabet Sveinsdóttir eru potturinn og pannan á bak við Á allra vörum en hugmyndafræðin gengur út á að velja eitt málefni á ári sem þarfnist athygli og aðstoðar. Síðan er ákveðið fyrir hverju skal safna og lagt af stað. Á allra vörum beindi árið 2013 kastljósinu að málefnum geðheilbrigðis á Íslandi og safnað var fyrir bráðageðdeild á Landspítala.Við opnun bráðageðdeildar 32C afhentu þrjár vinkonur gjöf til hennar, 14 þúsund krónur sem þær höfðu safnað með tombólu. Stúlkurnar heita Júlía Sigríður Pálsdóttir, Ingibjörg Fía Hauksdóttir og Rannveig Lára Kristjánsdóttir Grimm. En þær létu ekki þar við sitja heldur léku líka á píanó fyrir gesti í opnunarathöfninni.