Dagana12. til 16. maí 2014 verður „vika hjúkrunar “ haldin á Landspítala á vegum hjúkrunarráðs.
Í boði verða áhugaverðir hádegisfyrirlestrar, málþing um starfsemi göngudeildar hjartabilunar, hjúkrunarbúðir þar sem sýndar verða nýjungar og nauðsynjar í hjúkrun og veggspjaldasýning sem sýnir rannsóknir og verkefni sem tengjast hjúkrun á Landspítala. Þá mun Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga veita 21 hjúkrunarfræðingi styrk úr vísindasjóði félagsins. Styrkirnir eru veittir árlega og er þeim ætlað að stuðla að aukinni fræðimennsku í hjúkrun.
Allir eru velkomnir á viðburðina