Alþjóðlegi handhreinsunardagurinn 2014 er í dag, mánudaginn 5. maí 2014. Dagurinn er haldin árlega um heim allan að tilhlutan Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO) til að minna á mikilvægi handhreinsunar í heilbrigðisþjónustu.
Algengustu sýkingar sem eiga uppruna sinn innan sjúkrahúsa:
- Þvagfærasýkingar
- Skurðsárasýkingar
- Lunganbólgur
- Blóðsýkingar
Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninn stýrir fjölþjóðlegu verkefni sem heitir „Clean care is safer care “. Ísland undirritaði samkomulag um þátttöku í verkefninu árið 2007. Árið 2012 var verkefnið tekið upp á Landspítala og fékk það nafnið „Með hreinum höndum“. Verkefnið hófst á 5 deildum LSH en nú taka 14 deildir þátt í því. Markmiðið er að allar deildir Landspítala taki þátt í verkefninu og handhreinsun verði 80-100%. Hornsteinar verkefnisins eru fræðsla til starfsmanna um fimm ábendingar handhreinsunar, aukið aðgengi að handspritti og vikuleg skráning á fylgni við handhreinsun.
Í dag, 5. maí 2014, eru í fyrsta skipti birtar niðurstöður skráninga á fylgni við handhreinsun á Landspítala. Áður en verkefnið var innleitt á deildum var fylgni við handhreinsun 43% (forskráning 2013) og 49% (forskráning 2014). Eftir innleiðingu er fylgnin 59% árið 2013 og 63% 2014. Það er því ljóst að eftir að verkefnið „Með hreinum höndum“ var innleitt hefur handhreinsun starfsmanna aukist og orðið markvissari samkvæmt fimm ábendingum handhreinsunar.