Miklar breytingar eru framundan á barnasviði Landspítala - háskólasjúkrahúss sem tengjast sameiningu spítalanna og flutningi í hinn nýja barnaspítala. Breytingarnar skapa mikilvæg tækifæri til að bæta þjónustu við skjólstæðinga barnaspítalans og endurskipuleggja starfsemina í heild sinni. Á undanförnum árum hefur umtalsverð vinna verið unnin í tengslum við skipulag á nýja barnaspítalanum og þar sem nú hyllir undir flutning í nýtt húsnæði er mikilvægt að halda þessari vinnu áfram.
Sviðstjórar barnasviðs hafa tilnefnt fjóra starfsmenn til að stýra þessari vinnu og koma með tillögur um skipulag þjónustunnar. Stýrihópurinn mun leita eftir samstarfi við starfsmenn barnasviðs og eru sem flestir hvattir til að koma hugmyndum sínum á framfæri við hópinn.
Í stýrihópnum eru:
Anna Ólafía Sigurðardóttir hjúkrunarfræðingur (annaosig@landspitali.is)
Árni Þórsson læknir (arniv@landspitali.is)
Bára Sigurjónsdóttir hjúkrunarfræðingur (barahsig@landspitali.is)
Þórólfur Guðnason læknir (thorgud@landspitali.is)