Leit
Loka

Bráðalyflækningadeild

Meginviðfangsefni deildarinnar er greining, meðferð og hjúkrun sjúklinga með bráð lyflæknisfræðileg vandamál sem þarfnast stuttrar sjúkrahúslegu

Deildarstjóri

María Vigdís Sverrisdóttir

mariav@landspitali.is
Yfirlæknir

Sigríður Þórdís Valtýsdóttir

sigrival@landspitali.is

Banner mynd fyrir  Bráðalyflækningadeild

Hafðu samband

OPIÐAllan sólarhringinn alla daga

Sjúklingar leggjast inn hvenær sem er sólarhringsins og útskrifað er alla daga

Bráðalyflækningadeild - mynd

Hér erum við

Fossvogur. A álma 2. hæð. Aðalinngangur Krókur.

Sjá staðsetningu á korti

Hagnýtar upplýsingar

Athygli er vakin á því að heimsóknartímar deildarinnar eru á milli klukkan 16.00 og 18.00 alla daga.

Athugið einnig eftirfarandi:

  • Á heimsóknartíma þá mega koma fleiri en einn gestur til hvers sjúklings en aðeins einn í einu nema gesturinn þurfi fylgdarmann.
  • Leyfður er einn gestur á dag hjá hverjum sjúkling hálftíma í senn
  • Gestir eru beðnir um að fresta heimsókn ef þeir hafa einkenni um öndunarfærasýkingu en bera grímu ef aðstæður leyfa ekki frestun.

Meginviðfangsefni

  • Almenn lyflæknisfræðileg vandamál sem þarfnast stuttrar legu

Meginviðfangsefni deildarinnar er greining, meðferð og hjúkrun sjúklinga með bráð lyflæknisfræðileg vandamál sem þarfnastinnlagnar á sjúkrahús og falla undir almennar lyflækningar. Flestir sjúklingar koma frá bráðamóttöku en líka frá dag og göngudeildum spítalans.

Deildin er 20 rúma legudeild og hefur á að skipa um 60 starfsmönnum.

Starfsfólk deildarinnar leggur áherslu á góð samskipti við sjúklinga og fjölskyldur þeirra og að veita greinargóðar upplýsingar um sjúkdómsástand, rannsóknir, meðferð, hjúkrun og batahorfur.

Allir sjúklingar fá mat á deildinni nema þeir séu tímabundið fastandi vegna rannsókna, aðgerða eða sjúkdómsástands.

  • Morgunverður um kl. 8:30
  • Hádegisverður um kl. 12:00
  • Miðdegiskaffi um 14:30
  • Kvöldmatur kl. 17:30
  • Kvöldkaffi um 19:30
  • Á ganginum er kæliskápur fyrir sjúklinga og vatnsvél með drykkjarvatni.
  • Blóm eru ekki leyfð á deildinni.
  • Farsíma má nota en vinsamlega hafið símann stilltan á hljólaust og takið tillit til stofufélaga þegar talað er í síma.
  • Vinsamlega virðið einkalíf annarra sjúklinga og ræðið ekki það sem þið kunnið að verða áskynja um heilsufar þeirra og hagi.
  • Sjúklingar geta fengið aðgang að Netinu gegnum gestanet spítalans.
  • Sjónvörp eru á öllum sjúkrastofumog þar er líka hægt að hlusta á útvarp.
  • Kvennadeild Rauða kross Íslands rekur verslanir í anddyrum Landspítala.
  • Sjúklingar eru beðnir um að láta vita ef þeir hyggjast fara í verslunina eða af deildinni í öðrum erindagjörðum.
  • Hraðbanki er í anddyri og sjálfsalar eru á annari hæð hússins við stigagang.
  • Guðsþjónustur eru auglýstar sérstaklega.

Landspítali er háskólasjúkrahús og þangað kemur ár hvert fjöldi nema í hinum ýmsu starfsgreinum til kennslu og þjálfunar.  Nemendur fylgjast með og taka þátt í daglegri meðferð sjúklinga.  Þeir eru alltaf á ábyrgð undir handleiðslu leiðbeinenda sinna.

Umfangsmikið vísindastarf er unnið á sjúkrahúsinu.  Sjúklingar eru stundum beðnir um að taka þátt í slíkum verkefnum og eiga þeir þá rétt á ítarlegri upplýsingagjöf um tilgang og framkvæmd verkefnis. Hverjum og einum er heimilt að neita slíkri þátttöku eða hætta henni hvenær sem er án skýringa.


Allir sjúklingar eiga að fá armband með nafni og kennitölu.  Upplýsingar á armbandinu eru notaðar til staðfestingar þegar lyf eru gefin, við blóðgjafir og hvers kyns rannsóknir og aðgerðir.

Stundum þykir fólki nóg um hversu oft er til dæmi spurt um kennitölu, ofnæmi og lyfjanotkun en allt er þetta gert til að tryggja öryggi.

Best er ef sjúklingar eru vakandi fyrir þessum vinnureglum og minni á ef ekki er farið eftir þeim.

Hjálpaðu okkur að tryggja öryggi þitt.

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir
Af hverju ekki?