Leit
Loka

Neyðarmóttaka fyrir þolendur kynferðisofbeldis

Stendur öllum til boða sem þangað leita, án tilvísunar, vegna nauðgunar, tilraunar til nauðgunar eða annars kynferðisofbeldis.

Banner mynd fyrir  Neyðarmóttaka fyrir þolendur kynferðisofbeldis

Hafðu samband

OPIÐAllan sólarhringinn alla daga

Neyðarmóttaka fyrir þolendur kynferðisofbeldis - mynd

Hér erum við

Bráðamóttaka Fossvogi

Hagnýtar upplýsingar

Best er að hringja fyrst og biðja um þjónustu hjá neyðarmóttökunni.

Mikilvægt að koma sem fyrst eftir brot.

Hægt er að koma beint á bráðamóttökuna í Fossvogi og biðja þar um þjónustu á neyðarmóttöku.

Hægt er að fá upplýsingar og biðja um aðstoð lögreglu til að koma á neyðarmóttökuna.

Hægt er að hringja í síma:

  • 543 1000 - Aðalskiptiborð Landspítala
  • 543 2000 - Afgreiðsla bráðamóttöku Landspítala
  • 543 2094 - Neyðarmóttakan á dagvinnutíma

Neyðarmóttaka fyrir þolendur kynferðisofbeldis hefur verið starfrækt á Landspítala Fossvogi síðan árið 1993.

Markmið neyðarmóttökunnar að tryggja velferð og stöðu þeirra sem til þjónustunnar leita vegna nauðgunar, tilraunar til nauðgunar eða annars kynferðisofbeldis.

Tilgangur með þjónustu neyðarmóttökunnar er að draga úr eða koma í veg fyrir andlegt og líkamlegt heilsutjón sem oft er afleiðing kynferðislegs ofbeldis.

Þeim sem leita til neyðarmóttökunnar skal sýnd fyllsta tillitssemi og hlýja og þess gætt að þeim sé ekki mætt með vantrú eða tortryggni.

Mikilvægt er að virða í öllu og styrkja sjálfsákvörðunarrétt og óskir brotaþola. 

Þjónusta neyðarmóttökunnar

  • Metið er hverju sinni í hverju þjónustan á að felast í samvinnu og samráði milli starfsfólks neyðarmóttökunnar og þolandans
  • Þeir sem hafa verið beittir kynferðisofbeldi geta leitað sér aðstoðar hvort heldur er til ráðgjafar og stuðnings eða komið til þess að fá læknisskoðun og meðferð
  • Starfsfólk veitir brotaþola og fylgdaraðila andlegan stuðning og ráðgjöf við komu
  • Þjónustan er brotaþola alveg að kostnaðarlausu
  • Þjónustan er veitt allan sólarhringinn og móttakan nýtur forgangs
  • Nafnleynd gildir um konuna/manninn og alla meðferðina og fyllsti trúnaður gildir um allt málið
  • Læknisskoðun og meðferð, þar með talin kvenskoðun
  • Réttarlæknisfræðileg skoðun og taka og varðveisla sakargagna
  • Þjónustan er ekki háð ákvörðun um kæru
  • Boðin er lögfræðileg ráðgjöf og aðstoð við að leggja fram kæru vegna málsins
  • Það er á valdi brotaþola/eða foreldra ungra þolenda að ákveða að leggja fram kæru í málinu eða ekki
  • Vísað er í sálfræðiaðstoð þar sem veitt er aðstoð við úrvinnslu áfalls, fræðsla og ráðgjöf um algengar afleiðingar áfalla. Metin er þörf fyrir frekari sérhæfða meðferð vegna andlegra/líkamlegra viðbragða og unnið er að styrkingu bjargráða og stuðningskerfa
  • Sakargögn eru geymd í minnst 9 vikur
  • Læknisskýrsla og sakargögn eru aldrei afhent lögreglu nema gegn skriflegri yfirlýsingu með leyfi brotaþola eða forráðamanns barna yngri en 18 ára
  • Samkvæmt lagalegri skyldu er neyðarmóttöku skylt að tilkynna mál til barnaverndaryfirvalda ef ungmenni er innan 18 ára aldurs
  • Fyrirspurnir um þjónustu og starfsemi má senda á neydarmottaka@landspitali.is . Þangað er einnig hægt að senda fyrirspurn um afgreiðslu einstakra mála, niðurstöður rannsókna eða tengd mál

Þeir sem starfa við neyðarmóttökuna

  • Hópur sérhæfðra hjúkrunarfræðinga á bráðamóttöku LSH
  • Sex læknar sem vinna við meðferð kvensjúkdóma. Einn sálfræðingur/ráðgjafi sem sinnir sálrænum stuðningi og meðferð virka daga
  • Hópur sálfræðinga sem starfa innan geðsviðs LSH sinna eftirfylgd mála eftir þörfum
  • Fimm lögfræðingar/réttargæslumenn

Mikilvægt er að:

  • koma eins fljótt og hægt er eftir meint kynferðisbrot
  • þvo sér ekki eða fara í bað áður en skoðun og sýnataka fer fram
  • þvo hvorki né fleygja fötum, tíðabindum eða tíðatöppum tengdum atburði og ekki fleygja verjum
  • vera í fötum sem tengjast broti eða hafa meðferðis á neyðarmóttöku
  • ekki hreinsa eða farga sakargögnum á sakarvettvangi (t.d. rúmfatnaði, húsgögnum, húsbúnaði, tækjum og tólum)

Læknisskoðun og meðferð, þar með talin kvenskoðun

  • Er fyrst og fremst til að tryggja velferð brotaþola
  • Tekin eru sýni til að útiloka hugsanlegar sýkingar og þungun
  • Áverkar sem brotaþoli hefur fengið eru metnir og meðhöndlaðir eftir alvarleika þeirra
  • Lyf eru gefin til að fyrirbyggja mögulegar sýkingar og einnig þungun

Réttarlæknisfræðileg skoðun og taka og varðveisla sakargagna

  • Gerð er nákvæm læknisskýrsla þar sem frásögn brotaþola af atburði er skráð, metin andleg líðan og skráð niður lýsing af útliti og ástandi brotaþola við komu
  • Gerð nákvæm líkamsskoðun þar sem allir áverkar eru skoðaðir og skráðir
  • Tekin eru stroksýni til DNA-rannsókna eftir eðli málsins
  • Fatnaður og önnur sakargögn eru tekin og geymd
  • Teknar eru ljósmyndir af sýnilegum áverkum

Ráðgjöf og stuðningur læknis og hjúkrunarfræðings varðandi eftirmeðferð líkamlegra áverka, lyfjameðferðar og upplýsingagjöf um kreppuráðgjöf og viðtöl vegna andlegrar vanlíðunar.

Aðhlynning og dvöl á staðnum ef þörf krefur vegna líkamlegra áverka, andlegrar vanlíðunar, félagslegra vandamála í allt að sólarhring eða lengur.
Ef þörf krefur: Tilvísun til annarra úrræða eins og Kvennaathvarfs, Stígamóta, Konukots, geðdeildar LSH, Félagsþjónustunnar, SÁÁ o.fl.

Þjónusta sálfræðings

  • Kreppuráðgjöf, bæði fyrir brotaþola og hennar/hans nánustu
  • Sálfræðingur / ráðgjafi veitir brotaþola andlegan stuðning, ráðgjöf og hjálp við tilfinningalega úrvinnslu og eru viðtölin brotaþola að kostnaðarlausu
  • Sálfræðingur hefur samband við brotaþola og einnig aðstandendur barna innan 18 ára aldurs og ákveður í samvinnu við aðila viðtöl og frekari eftirfylgd, innan eða utan neyðarmóttöku

Í kjölfar mats sálfræðings á andlegri líðan brotaþola er boðið upp á áframhaldandi úrvinnslu og meðferð eftir áfallið, aðstoð við sálfélagslega þætti í samvinnu við brotaþola og unnið er að styrkingu bjargráða og stuðningskerfa.
Sálfræðingur / ráðgjafi tilkynnir til barnaverndaryfirvalda öll mál þar sem brotaþoli er innan 18 ára aldurs. Barnavernd sér um eftirfylgd mála barna innan 18 ára aldurs í samvinnu við neyðarmóttöku.

Þjónusta lögmanns

  • Allir brotaþolar eiga rétt á viðtali við lögmann / réttargæslumann, hvort sem kært er í málinu eða ekki og er það að kostnaðarlausu
  • Lögmaður er brotaþola til halds og trausts og veitir lögfræðilega ráðgjöf um skýrslutökuna, meðferð sakargagna, meðferð málsins í réttarkerfinu og dómsuppkvaðningu
  • Lögmaður er viðstaddur skýrslutöku hjá rannsóknarlögreglu ef brotaþoli hefur ákveðið að kæra málið
  • Einnig undirbýr lögmaður kröfu um miskabætur fyrir brotaþola og fylgist með framvindu málsins í réttarkerfinu

           Hlutverk réttargæslumanna

Endurkomutímar á neyðarmóttökuna

  • Eftir þörfum eru boðnir endurkomutímar
  • Sami hjúkrunarfræðingur sem tók á móti brotaþola í fyrstu komu hittir brotaþola í endurkomutímum
  • Eftirfylgd er t.d. vegna frekari sýnatöku, þungunar og áverkaskoðunar til að meta líkamlega áverka og fylgja eftir meðferð þeirra. Fer það eftir alvarleika þeirra
  • Stundum er þörf fyrir frekari greiningu og myndatökur af áverkum
  • Metin er líkamleg og andleg líðan brotaþola og þörf fyrir frekari aðstoð fagaðila
  • Skráð er og útfyllt endurkomuskýrsla um kvartanir brotaþola
  • Blóðsýnatökur vegna mögulegra smitsjúkdóma (lifrarbólgu B+C og HIV) þarf að endurtaka aftur eftir 3 mánuði og 6 mánuði til að fá áreiðanleg svör. Brotaþoli ber ábyrgð á því að sinna þeirri eftirfylgd sjálf/sjálfur eða forráðamenn barna
  • Blóðsýnatökur eru gerðar á húð- og kynsjúkdómadeild og á heilsugæslustöðvum að kostnaðarlausu og án þess að tiltaka þurfi ástæðu fyrir beiðni þar.

Rannsóknardeildir lögreglunnar

Skýrslutaka hjá rannsóknardeildum lögreglunnar er stundum þannig að frumskýrsla er tekin á neyðarmóttökunni en lokaskýrsla síðar hjá rannsóknarlögreglu og er lögmaður / réttargæslumaður viðstaddur í bæði skiptin.

  • Yfirheyrsla yfir börnum yngri en 15 ára fer fram í Barnahúsi eða í sérútbúinni aðstöðu í Héraðsdómi og fer eftir ákvörðun dómara hverju sinni
  • Yfirheyrsla yfir börnum eldri en15 ára fer fram hjá lögreglu eða í sérútbúinni aðstöðu í Héraðsdómi

Sérfræðingar

  • Til sérfræðinga á sýkladeild Landspítala eru send sýni til rannsóknar til að greina hugsanlegar sýkingar
  • Sakargögn tekin til DNA greiningar, sýnapinnar með sæði, hársýni, fatnaður o.fl. eru send til sérfræðings í réttarfræði hjá rannsóknar- og tæknideild lögreglunnar

Aðrir sem samstarf er við:

Læknar og sérfræðingar á bráðadeild G2 á Landspítala sinna skoðun og veita meðferð vegna alvarlegra áverka eftir líkamlegt ofbeldi tengdu kynferðisofbeldi.

Tengd starfsemi og þjónusta

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir
Af hverju ekki?