A6 lungnadeild

Aðsetur: 6. hæð A álma í Fossvogi

Símanúmer deildar: 543 6670

Vaktstjóri hjúkrunar:

Símatímar aðstandenda:

Heimsóknartímar: frá kl. 15:00 - 16:00 og 19:00 - 20:00

Deildin er bráðadeild. Hún er eina sérhæfða deild sinnar tegundar á landinu.  Til hennar leita sjúklingar af öllu landinu til greiningar og meðferðar á  bráðum og langvinnum  lungnasjúkdómum sem og öndunartruflunum sem tengjast svefni. 

Landspítali er háskólasjúkrahús og nemendur í heilbrigðisfræðum og tengdum greinum stunda hluta af námi sínum á spítalanum. Nemendur fylgjast með og taka þátt í daglegri meðferð sjúklinga og eru alltaf á ábyrgð og undir handleiðslu leiðbeinenda sinna.

Samhliða legudeildinni er rekin súrefnisþjónusta lungnadeildar sem sinnir súrefnisþegum í heimahúsum.  Á A-3 er göngudeild ofnæmis- og lungarannsókna. Á reykleysismiðstöð veitir hjúkrunarfræðingur stuðning og fræðslu til þeirra sem vilja hætta að reykja.

Deildarstjóri: Guðrún Jónsdótir  s. 543 6677  netfang:  gudjonsd@landspitali.is

Yfirlæknir:  Þórarinn Gíslason, netfang:  thorarig@landspitali.is

Síðast breytt: 12.06.2009 16:47
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli