Verslun kvennadeildar Rauða kross Íslands í Kringlunni á Landspítala Hringbraut

Kvennadeild Rauða krossins rekur verslanir í anddyrum Landspítala Fossvogi og Landspítala Hringbraut. Þar er reynt að hafa á boðstólum það helst sem sjúklingar þurfa á að halda meðan þeir dvelja á spítalanum.  Sjálfsala og peningaskipta er einnig að finna í húsakynnum spítalans.

Verslanir

Hringbraut (Kringlan), s. 543 7939  
Virkir dagar kl. 10:00-16:00 og 17:00-19:30  
Um helgar kl. 14:00-16:00
Fossvogur (í efra anddyri), s. 543 6478
Mánudagar til fimmtudagar kl 9:30-16:00 og 17:00-18:30 
Föstudagar kl. 9:30-16:00
Um helgar kl. 13:30-16:00 

Til sölu (stiklað á stóru):

Afþreying: Tímarit, dagblöð, reyfarar fyrir fullorðna, krossgátublöð fyrir börn og fullorðna, spil af ýmsu tagi, leikföng.
Áhöld: Hækjur, mjaltavélar fyrir mæður.
Blóm: Tilbúnir blómvendir, gjafakort.
Gjafavörur: Ýmsar gjafavörur, leikföng, blóm, konfektkassar.
Sælgæti: Úrval af margs konar sælgæti, konfekt, gosdrykkir.
Snyrtivörur: Hársnyrtivörur, andlitssnyrtivörur, teygjur, burstar, greiður, rakáhöld, sjampó.
Fatnaður: Sokkar, nærföt.
Símakort og frímerki
Ritföng
 

Sjálfsalar

Kvennadeild Rauða kross Íslands er með nokkra sjálfsala í anddyrum á sjúkrahúsinu þar sem hægt er að kaupa matar- og drykkjarvörur og sælgæti. Starfsmannafélag Landspítala rekur gossjálfsala á LSH á stöðum þar sem kvennadeild Rauða krossins er ekki með slíka sölu. 

Eiríksstaðir Gos

Fossvogur
Anddyri: Mjólkurvörur, kex, sælgæti, ávaxtasafar, gos, ís.
Slysa- og bráðadeild: Mjólkurvörur, kex, sælgæti, ávaxtasafar, gos, ís.

Grensás Sælgæti, gos.

Hringbraut
Anddyri (Kringlan): Mjólkurvörur, kex, sælgæti, ávaxtasafar, gos, ís.
Fæðingardeild: Mjólkurvörur, kex, sælgæti, ávaxtasafar, gos.
Starfsmannainngangur (Eiríksgötumegin): Gos.
Framan við matsalinn: Gos.
Geðdeildahús: Sælgæti.

Kleppur Gos.

Landakot Sælgæti, gos.

Peningaskiptar

Kvennadeild Rauða kross Íslands er með peningaskipta á nokkrum stöðum á Landspítala til að auðvelda fólki að nota sjálfsalana.  Í þeim er hægt að skipta seðlum, aðallega 1000 króna og fá 100 króna mynt í staðinn.

Fossvogur aðalanddyri, bráðamóttaka
Grensás
Hringbraut
aðalanddyri (Kringlan), fæðingardeild
Landakot pallur 1. hæðar