Cryptosporidium - Cyclospora

Frumdýr í görn: Cryptosporidium og Cyclospora

 Nafn  Cryptosporidium parvum  Cyclospora cayetanensis
 Hýsill Spendýr (þ.á.m. flest húsdýr), maðurinn   Óþekkt
 Gerð  Gródýr (coccidian)  Gródýr (coccidian)
 Útbreiðsla Um allan heim, líka á Íslandi N-, Mið- og S-Ameríka, Karabísku eyjarnar, A-Evrópa, Afríka, Nepal, S-A Asía, Ástralía
 Smit Saur-munn smit úr sýktum dýrum og mönnum, oft með vatni. Lifir í klórmeðhöndluðu drykkjarvatni Smit rakið til fæðu (hindber, salat, basil) og vatns. Lifir í klórmeðhöndluðu drykkjarvatni. Saur - munn smit líklegt
 Meltingarvegur Í þörmum og ristli. Einkenni 4 - 28 d eftir smit (venjulega 1 vika) Í smáþörmum. Einkenni 1 - 12 d eftir smit (venjulega 1 vika)
 Einkenni a) Engin; b) ógleði, + vægur hiti, kviðverkir, vatnskenndur og blóðlaus niðurgangur. Eðlilegt ónæmiskerfi: 2-3 vikna veikindi. Ónæmisbæling: langvarandi niðurgangur a) Engin; b) + vægur hiti, þreyta, ógleði, uppköst, lystarleysi, kviðverkir, vatnskenndur og blóðlaus niðurgangur, þyngdartap. Veikindi geta varað í allt að 2 mánuði hjá einstaklingum með eðlilegt ónæmiskerfi og lengur ef ónæmisbæling. Þau einkennast af endurteknum niðurgangsköstum
 Aukakvillar a) Ónæmisbæling: lífshættulegur, kólerulíkur niðurgangur; b) sýking í öndunarfærum, gallblöðru, lifur, brisi Hugsanlega sýking í gallblöðru
 Saurrannsókn Eggblöðrur (oocysts). Greining á Cryptosporidium er ekki hluti af venjulegri sníkjudýra - saurrannsókn, þarf að tilgreina sérstaklega á beiðni  Eggblöðrur (oocysts). Greining á Cyclospora er ekki hluti af venjulegri sníkjudýra - saurrannsókn, þarf að tilgreina sérstaklega á beiðni 
 Blóðvatnspróf  0  0
 Aðrar greiningaraðferðir Má einnig greina í bíopsíum frá meltingarvegi Má einnig greina í bíopsíum frá meltingarvegi
 Meðferð Engin fullnægjandi meðferð. Má reyna paromomycin (ekki skráð hér) Trimethoprim 160 mg og sulfamethoxazole 800 mg x 2/d í 7 d. Börn: trimethoprim 5 mg/kg og sulfamethoxazole 25 mg/kg x 2/dag í 7 daga