Yfirskrift: „Flæði bráðveikra; sjúklingar, starfsfólk og starfsumhverfi“
Árlega er haldin þverfagleg ráðstefna á vegum flæðisviðs Landspítala þar sem kynntar eru rannsóknir og verkefni sem unnin hafa verið í tengslum við bráðaþjónustu á Íslandi.
Bráðadagurinn er ekki aðeins uppskeruhátíð rannsókna og starfsþróunarverkefna bráðaþjónustu heldur líka mikilvægur liður í símenntun starfsfólks. Ráðstefnuna sækir fagfólk í þjónustu bráðveikra einstaklinga hvaðanæva í samfélaginu.