Jón Kristjánsson heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra hefur fallist á að forstjórar Tryggingastofnunar ríkisins og Landspítala - háskólasjúkrahúss geri samning um að hefja nýrnaígræðslu og stofnfrumumeðferð við spítalann. Um er að ræða tilraunasamning til nokkurra ára sem felur í sér nýrnaígræðslu frá lifandi gjöfum annars vegar og stofnfrumumeðferð við tilteknum krabbameinum.
Þessi ákvörðun var kynnt á fundi með blaða- og fréttamönnum sem Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra, Karl Steinar Guðnason forstjóri Tryggingastofnunar ríkisins og Magnús Pétursson forstjóri LSH efndu til á Landspítala Hringbraut mánudaginn 4. maí 2003. Á þeim fundi gerðu læknarnir Runólfur Pálsson og Vilhelmína Haraldsdóttir grein fyrir hvað fælist í nýrnaígræðslu og stofnfrumumeðferð.
Forsvarsmenn Landspítala - háskólasjúkrahúss og Tryggingastofnunar ríkisins hafa á undanförnum mánuðum athugað gaumgæfilega möguleika á að flytja aðgerðir af þessu tagi heim frá útlöndum. Að undirbúningi málsins hafa komið læknar og aðrir heilbrigðisstarfsmenn, auk sérfræðinga á vegum TR. Niðurstaða athugananna er að faglegar og fjárhagslegar forsendur eru fyrir því að taka upp þessar nýjungar við Landspítala - háskólasjúkrahús og gætu fyrstu aðgerðir orðið síðla árs.
Tryggingastofnun ríkisins hefur árlega greitt fyrir þrjá til fimm einstaklinga sem hafa fengið nýru úr lifandi gjöfum og hefur verið í gildi samningur við Dani um aðgerðirnar. Hvað stofnfrumumeðferð áhrærir þá hefur fram til þessa aðallega verið leitað til Svía og er líklegt að fimm til sjö einstaklingar njóti þjónustunnar hér á ári hverju.
Ekki er gert ráð fyrir að útgjöld íslenska ríkisins aukist með samningi LSH og TR umfram greiðslurnar sem nú renna til sjúkrahúsa erlendis.
Það er nýlunda að Tryggingastofnun ríkisins geri sérstakan samning við Landspítala - háskólasjúkrahús um tiltekna þjónustu eins og þá sem hér er rætt um.