Landspítali hefur samið við Optima ehf. til sex ára um innleiðingu og rekstur á nýju aðgangstýrðu prentumhverfi sem nefnist Prentský. Undanfarin 7 ár hefur Optima rekið sams konar prentþjónustu á Landspítala en í upphafi árs 2018 var verkefnið boðið út á ný og varð Optima hlutskarpast í því útboði.
Prentlausn sem þessi er umhverfisvæn og lækkar rekstrarkostnað umtalsvert. Áætlað er að Landspítali hafi sparað tugi milljóna á ári frá því að hún var fyrst innleidd.
Verkefnið er umfangsmikið en í heildina verða sett upp um 350 ný og fullkomin prenttæki með hugbúnaði á öllum starfsstöðvum spítalans. Landspítali leigir allan búnað af Optima sem sér jafnframt um allan rekstur og þjónustu við tækin.
Starfsmenn Landspítala nota aðgangskort í tækin og því liggja ekki viðkvæmar upplýsingar á þeim. Með hertari löggjöf um persónuvernd hentar þessi lausn mjög vel auk þess sem umhverfið nýtur góðs af henni en pappírsnotkun hefur dregist saman með betri nýtingu og minni sóun.
Mynd: Undirritun samnings Landspítala og Optima. Ágúst Kristján Steinarrsson, verkefnastjóri hjá Landspítala, Jóhann Bjarni Magnússon, gæða- og öryggisstjóri hjá Landspítala, Jón Hilmar Friðriksson, framkvæmdastjóri hjá Landspítala, Þorsteinn G.A Guðnason, framkvæmdastjóri Optima, Ómar Ingi Tryggvason, forstöðumaður sölu- og markaðssviðs Optima.