Ríkiskaup f.h. Landspítala (kt. 500300-2130) óskar eftir tilboðum í verkið: Landspítali Tunguháls 2 – Þvottahús spítalanna, endurbætur og stækkun ketilhúss.
Byggja á viðbyggingu við ketilhúsið á Tunguhálsi 2, 110 Reykjavík. Um er að ræða nýja steinsteypta viðbyggingu í sama formi og fyrri stækkun sem gerð var 1997, hún verður einangruð að utan og klædd með báruformaðri álklæðningu og léttbyggðu þaki.
Helstu magntölur eru:
- Gröftur 330m3
- Steypa 59m3
- Hlaðnir veggir 133m2
- Einangrun útveggja 125 m2
- Báruformuð klæðning 125 m2
- Hurðir 3 stk
- Gluggar 5 stk
Nánari upplýsingar eru í útboðsgögnum sem eru aðgengilega af Tendsign rafræna útboðskerfinu á hlekk hér neðar.
TendSign