Ríkiskaup, fyrir hönd Landspítala, óskar eftir tilboðum í verkið LSH Dalbraut 12 (BUGL) Endurnýjun A - álmu.
A-álma Landsspítalans BUGL stendur við Dalbraut 12, 105 Reykjavík. Um er að ræða tveggja hæða byggingu, 1.hæð og kjallara. Verkmörk framkvæmdarinnar miðast við stigahús beggja vegna, sjá nánar á mynd 1 hér að neðan. Fyrirhugað er að endurinnrétta bygginguna að innan en búið er að rífa allt innan úr A - álmunni. Verkið felst því í uppbyggingu beggja hæða A-álmunnar burðarvirki, lögnum, rafkerfi og frágangi innandyra.
Fyrirhuguð verklok 30.06.2023.
Helstu magntölur eru:
-
Múr gólfílögn 255 m2
-
Stálstoðir, bitar og millileggspl. 1150 kg
-
Loftunarsamstæður 3 stk
-
Blásarar 3 stk
-
Lágspennustrengir 1460 m
-
Loftljós 99 stk
-
Cat strengir 1870 m
-
Innveggir 181 m2
-
Kerfisloft 259 m2
-
Innihurðir 25 stk
-
Gólfdúkar 436 m2
Nánari lýsing er í útboðsgögnum.
Skilafrestur tilboða er til 17.08.2022 kl. 12:00
Verkið skal framkvæma í samræmi við útboðsgögn sem eru aðgengileg rafrænt á útboðsvef Tendsign.