Landspítali óskar eftir tilboðum í viðgerð á þaki og þakíbúð á eign við Ármúla 1a.
Í verkefninu felst að fjarlægja 160 m2 þakíbúð að undanskildum steyptu kjarna og einnig fjarlægja handrið á þaki. Endurnýja þarf svo þak og þakdúk með öllum tilheyrandi frágangi og færa niðurföll í lágpunkta þakplötunnar ásamt því að klæða steyptan kjarna að hluta.
Tilboð verða opnuð 27. Ágúst kl. 14:00
Nánari upplýsingar eru í verðfyrirspurnargögnum sem hér eru aðgengileg á rafrænum útboðsvef Tendsign.