Í dag er alþjóðlegur dagur svefns og þá taka svefnsérfræðingar höndum saman og minna á mikilvægi góðs nætursvefns.
Samstarfssamningur velferðarsviðs Reykjavíkurborgar og geðþjónustu Landspítala um þjónustu við einstaklinga sem nýta Laugarásinn meðferðargeðdeild hefur verið endurnýjaður. Á Laugaránum er boðið upp á sérhæfða meðferð fyrir ungt fólk á aldrinum 18 til 35 ára með byrjandi geðrofssjúkdóm.
13. mars er alþjóðlegur dagur óráðs (delirium). Dagurinn er haldinn annan miðvikudag í mars ár hvert til að vekja fólk til umhugsunar um óráð og áhrif þess á sjúklinga, fjölskyldur og heilbrigðiskerfi.
Nýtt fræðsluefni um endómetríósu er nú aðgengilegt á vef Landspítala.
Samskiptateymi Landspítala boðaði til málþings til heiðurs Jóni Baldvini Halldórssyni en hann lét af störfum 29. febrúar 2024 eftir 25 ára starf á Landspítala.
Hulda Guðrún Valdimarsdóttir hefur verið ráðin sem deildarstjóri á Dagdeild skurðlækninga á Hringbraut frá 1. mars sl.
Á vef Landspítala má nú nálgast fræðsluefni um brunaáverka fyrir sjúklinga, aðstandendur og starfsfólk.
Oddný Brattberg Gunnarsdóttir, sérnámslæknir í lyflækningum, rannsakar hjartavöðvasjúkdóm sem nefnist Ofvaxtarhjartavöðvakvilli og getur valdið skyndidauða vegna þykknunar á hjartavöðva.
Landspítali notar vafrakökur m.a. til þess að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun
Nánar um vafrakökunotkun