Leit
Loka

Fæðingarvakt 23B

Þjónusta við konur í eðlilegri fæðingu og konur með áhættuþætti eða heilsufarsvandamál sem þurfa sérhæft eftirlit í fæðingu

Deildarstjóri

Guðlaug Erla Vilhjálmsdóttir yfirljósmóðir

gudlerla@landspitali.is
Yfirlæknir

Hulda Hjartardóttir

huldahja@landspitali.is

Meðgöngu- og sængurlegudeild RS-veira - Sýkingarhætta

Vegna sýkingarhættu af RS-veiru eru allar heimsóknir barna yngri en 12 ára bannaðar á vökudeild, fæðingarvakt, meðgöngu- og sængurlegudeild og göngudeild mæðraverndar. Aðrar heimsóknir er takmarkaðar

Banner mynd fyrir  Fæðingarvakt 23B

Hafðu samband

OPIÐAllan sólarhringinn alla daga

Fæðingarvakt  - mynd

Hér erum við

3. hæð í húsi Kvennadeildar á Landspítalalóð við Hringbraut

Hagnýtar upplýsingar

  • Meðgönguvernd hraustra kvenna í eðlilegri meðgöngu er sinnt af ljósmæðrum og læknum í heilsugæslu. Meðgönguvernd kvenna í áhættuhópum er sinnt af ljósmæðrum og læknum á Landspítala og Sjúkrahúsinu á Akureyri. Ómskoðun á meðgöngu er framkvæmd á þessum og öðrum smærri sjúkrahúsum.
  • Í meðgönguvernd eru konur upplýstar um ólíka fæðingarstaði og valkostir þeirra skoðaðir í ljósi heilsufars og annarra aðstæðna.
  • Síðustu vikur meðgöngu geta konur fundið fyrir óreglulegum fyrirvaraverkjum sem svipar til þeirra óreglulegu hríðaverkja sem konur finna gjarnan fyrir í upphafi fæðingar.
  • Flestar fæðingar byrja með því að hríðir hefjast, en tæplega 10% fæðinga byrja með legvatnsleka.
  • Ef fæðing er hafin með þéttum og reglulegum hríðum, legvatn er farið að renna eða ef mikið blæðir frá leggöngum þegar meðgöngulend er orðin 22 vikur eða meira er ráðlagt að hafa samband við deildina símleiðis (s. 543-3049) og koma til skoðunar.

Framtíðarsýn fæðingarvaktar

  • Fæðingarvakt er framúrskarandi og eftirsóttur vinnu- og námsstaður
  • Starfsfólk fæðingarvaktar hefur brennandi áhuga á að veita faglega og góða þjónustu
  • Á fæðingarvakt er leitast við að nota vinnubrögð sem samræmast bestu þekkingu hverju sinni
  • Starfsfólk fæðingarvaktar viðheldur þekkingu sinni með reglulegri endurmenntun og þjálfun
  • Árangur fæðingarvaktar samkvæmt gæðavísum og árangursmælikvörðum er sambærilegur við það besta í heiminum
  • Starfsfólk fæðingarvaktar stendur vörð um eðlilegar fæðingar
  • Ljósmæður leiða umönnun kvenna í eðlilegri fæðingu
  • Ljósmæður og læknar koma saman að umönnun kvenna með áhættuþætti
  • Yfirseta er mikilvægur þáttur. Ljósmæður og stjórnendur eru sammála um mikilvægi hennar
  • Starfsfólk fæðingarvaktar notar inngrip á markvissan hátt þegar ábending liggur fyrir
  • Starfsfólk fæðingarvaktar virðir óskir kvenna og aðstandenda og kemur til móts við þeirra þarfir eftir bestu getu
  • Starfsfólki fæðingarvaktar er mikið í mun að upplifun fólks af þeim einstaka atburði að verða foreldri verði sem best

Fæðingarvaktin í tölum

  • 80% fæðinga á deildinni sjálfkrafa fæðingar um leggöng
  • 8,4% áhaldafæðingar
  • 11,4% fæðingar með bráðakeisara

Árið 2019 voru:

  • 80% fæðinga á deildinni sjálfkrafa fæðingar um leggöng
  • 8,4% áhaldafæðingar
  • 11,4% fæðingar með bráðakeisara

Á deildinni starfa:

  • 65 ljósmæður
  • 29 fæðingar- og kvensjúkdómalæknar
  • 13 deildarlæknar
  • 1 ritari
  • 1 skrifstofumaður
  • 8-9 sérhæfðir starfsmenn
  • Á fæðingarvakt 23B er veitt þjónusta við konur í eðlilegri fæðingu auk þjónustu við konur með áhættuþætti eða heilsufarsvandamál sem þurfa sérhæft eftirlit í fæðingu
  • Markmið fæðingarvaktar er að veita faglega þjónustu þar sem velferð móður og barns er höfð að leiðarljósi. Traust, virðing og trúnaður eru ætíð höfð í fyrirrúmi og þess gætt að veita konum og stuðningsaðilum sem bestar upplýsingar á hverjum tíma.
  • Leitast er við að skapa þægilegt og rólegt umhverfi þar sem konan getur verið sjálf við stjórnvölinn í fæðingunni með góðum stuðningi frá aðstandanda og fagfólki.
  • Fæðingarferlið er viðkvæmt ferli sem ekki ætti að trufla. Þess vegna mælast ljósmæður og læknar fæðingarvaktar til þess að eingöngu einn aðstandandi eða annar stuðningsaðili sé viðstaddur fæðingu, en að sjálfsögðu viljum við heyra óskir foreldra ef þær eru á annan veg.
  • Á fæðingarvaktinni eru níu fæðingarstofur með aðgengi að salerni og sturtu. Þar af eru fimm fæðingarstofur með rúmgóða fæðingarlaug.
  • Ljósmæður deildarinnar sinna yfirsetu með samfelldum stuðningi við hina fæðandi konu og stuðningsaðila hennar. Fæðingarlæknar, barnalæknar, svæfingarlæknar og aðrir læknar sjúkrahússins sinna einnig konu og barni ef þörf krefur.
  • Við stöndum vörð um eðlilegar fæðingar og reynum að takmarka inngrip, án þess þó að skerða öryggi móður og barns.
  • Margskonar verkjastilling með og án lyfja stendur konum til boða á fæðingarvaktinni. Mælt er með því að reyna verkjastillingu án lyfja áður en gripið er til lyfja til verkjastillingar.
  • Á fæðingarvaktinni dvelja konur meðan á fæðingu stendur og í u.þ.b. tvo tíma eftir fæðingu.
  • Fæðingin og tíminn fyrst eftir fæðingu er mikilvægur fyrir tengslamyndun foreldra og nýbura. Grunnurinn að brjóstagjöf er lagður á fyrstu tímunum eftir fæðingu og mikilvægt að móðir og barn fái frið og tíma til að leggja þann mikilvæga grunn. Því eru heimsóknir á fæðingarvakt til fæðandi kvenna og heimsóknir fyrstu tímana eftir fæðingu ekki æskilegar nema í algjörum undantekningartilvikum.
  • Að lokinni dvöl á fæðingarvakt flyst fjölskyldan gjarnan á meðgöngu- og sængurlegudeild þar sem hún dvelur í um 4-72 klukkustundir.
  • Að lokinni dvöl á meðgöngu- og sængurlegudeild geta flestar fjölskyldur útskrifast í heimaþjónustu ljósmæðra. Ef fæðingin hefur gengið vel er hægt að útskrifast beint í heimaþjónustu ljósmæðra eftir fjögurra klukkustunda dvöl á fæðingarvakt.

Algengar spurningar og svör

Ljósmæður og læknar sem sinna meðgönguvernd hraustra kvenna í heilsugæslu, þar með talið Læknavaktin (s.1770), sinna fyrirspurnum og helstu vandamálum sem upp koma á meðgöngu og vísa konum á kvennadeildir Landspítala ef þörf krefur.

Ljósmæður og læknar á Landspítala og Sjúkrahúsinu á Akureyri sem sinna meðgönguvernd kvenna í áhættuhópum vísa konum á aðrar kvennadeildir eftir þörfum.

Ef þú hins vegar telur að fæðingin sé hafin, legvatnið sé farið að renna eða ef mikið blæðir frá leggöngum, þ.e. meira en sem nemur um 1-2 matskeiðum (15-30ml), skaltu hafa samband við okkur á fæðingarvaktinni ef meðgöngulengdin er orðin meira en 22 vikur (sjá einnig svar við spurningum um legvatnsleka og blæðingu frá leggöngum).

Síðustu vikur meðgöngunnar finna margar konur fyrir svokölluðum fyrirvaraverkjum. Fyrirvaraverkir eru óreglulegir samdrættir í legi með verkjum sem geta líkst túrverkjum. Þeir eru algengari á kvöldin og á nóttunni og geta staðið í nokkrar klukkustundir í senn en detta síðan niður.

Upphaf fæðingar, sem stundum er kallað forstig fæðingar, getur líkst fyrirvaraverkjum og einkennist af óreglulegum samdráttum í legi. Ef um fæðingu eru að ræða detta samdrættirnir hins vegar ekki niður með tímanum, heldur styrkjast og verða reglulegri eftir því sem líður á fæðinguna.

Nánari upplýsingar

heilsuveru.is - fæðingin

Virka stig fæðingarinnar einkennist af því að í stað óreglulegra og missterkra samdrátta koma reglulegar, sterkar hríðir á um 2-5 mínútna fresti.

Þér er óhætt að vera heima meðan þú treystir þér til en margar konur finna hjá sér þörf fyrir að hitta ljósmóður þegar líður á þetta tímabil fæðingarinnar.

Við mælum með því að hringja á fæðingarvaktina áður en lagt er af stað eða ef þú ert óviss um hvort það sé tímabært að koma.

Ef þú ert með ör á legi eftir fyrri keisaraskurð, háan blóðþrýsting, sykursýki, GBS í fæðingarvegi eða aðra áhættuþætti mælum við með því að þú komir á fæðingarvaktina um leið og virka stig fæðingarinnar hefst.

Nánari upplýsingar

Heilsuvera - Þroskaferli - fæðing

Ljósmóðir.is - fæðing eftir fyrri keisaraskurð

Myndbönd


 

 



  • Bílstól fyrir heimferðina, sem búið er að læra að festa í bílinn 
  • Föt, bleyjur og bossaþurrkur fyrir barnið
  • Slopp, þægileg föt og inniskó fyrir þig og maka eða stuðningsaðila
  • Snyrtidót, s.s. tannbursta, tannkrem og varasalva
  • Tónlist eða annað sem hjálpar ykkur að slaka á
  • Myndavél/sími
  • Nesti (fæðandi konur geta þó fengið létt snarl á deildinni)
  • Pening/greiðslukort/síma fyrir sjálfsala
  • Pening/greiðslukort í stöðumæli fyrir gjaldskyld stæði eða síma

Nánari upplýsingar

Heilsuvera - þroskaferlið


Í fæðingu er gott að þú hafir með þér stuðningsaðila sem þú hefur valið sjálf. Í flestum tilvikum er maki konunnar stuðningsaðili hennar.

Þar sem fæðing er viðkvæmt ferli mæla ljósmæður og læknar fæðingarvaktar með því að einungis einn stuðningsaðili sé viðstaddur fæðinguna.  Þó ber að hafa í huga að þarfir kvenna fyrir stuðning í fæðingu geta verið ólíkar.

Við biðjum konur sem þurfa á því að halda að hafa annan stuðningsaðila með sér í fæðingunni að ræða það þegar hringt er á deildina í aðdraganda fæðingar eða við komu á deildina.

Konur dvelja á fæðingarvaktinni meðan á fæðingu stendur og í um tvær klukkustundir eftir fæðinguna.  Heimsóknir á þessum tíma eru ekki taldar æskilegar.

Eftir fæðingu útskrifast konan heim eða á meðgöngu- og sængurlegudeild en þar er heimsóknartími fyrir nánustu aðstandendur.

Nánari upplýsingar

Stuðningur við fæðingu - yfirseta


Í upphafi fæðingar, áður en komið er á fæðingarstað, er gott að nýta sér ýmsar lyfjalausar leiðir til verkjastillingar svo sem bað/sturtu, nudd eða heita og kalda bakstra.

Ef þörf er á frekari verkjastillingu í upphafi fæðingar er mælt með að hafa samband við fæðingarvaktina.

Nánari upplýsingar

Verkjameðferð

Verkjameðferð í fæðingu með lyfjum Utanbastsdeyfing, glaðloft og Petidín

Vatnsböð

Glaðloft og umhverfisáhrif - upplýsingar


Fæðingarvaktin sinnir öllum konum sem til hennar leita, bæði hraustum konum og konum með áhættuþætti eða heilsufarsvandamál.

Samkvæmt leiðbeiningum Embættis landlæknis um val á fæðingarstað er konum með áhættuþætti eða heilsufarsvandamál ráðlagt að fæða þar sem er aðgengi að ýmiss konar sérhæfðri heilbrigðisþjónustu, líkt og er í boði á fæðingarvaktinni.

Hægt er að mæla með öðrum valkostum fyrir hraustar konur án áhættuþátta, til dæmis fæðingardeildum sjúkrahúsanna á Akranesi, Selfossi eða Keflavík, eða þjónustu ljósmæðra við heimafæðingar eða á fæðingarstofu/fæðingarheimili.

Nánari upplýsingar

Val á fæðingarstað - Hvar á ég að fæða barnið mitt?

Leiðbeiningar um val á fæðingarstað

Flestar fæðingar byrja með hríðum en tæplega 10% þeirra byrja með því að legvatnið fer að renna.  Legvatnsleki getur ýmist byrjað með stórri gusu eða smærri gusum.

Þar sem margar konur upplifa mikla og þunnfljótandi útferð frá leggöngum og jafnvel þvagleka á síðustu vikum meðgöngunnar getur verið erfitt að gera sér grein fyrir því hvort um legvatnsleka sé að ræða ef vökvagusan er lítil.

Legvatn hefur sætkennda lykt sem getur hjálpað til við að greina það frá útferð eða þvagi.

Það sem að auki einkennir legvatnsleka er að yfirleitt er ekki um staka gusu að ræða heldur halda áfram að koma gusur þangað til barnið fæðist, t.d. þegar þú eða barnið hreyfið ykkur.

Ef um litla, staka gusu er að ræða, vökvinn lyktar af þvagi eða útferð og þú þarft ekki að hafa bindi við þig til að taka við vökvanum er ólíklegt að um legvatnsleka sé að ræða.

Nánari upplýsingar

Er legvatnið farið? - Hvað gerum við þá?

Farið legvatn - Ráðleggingar ef legvatn er farið eftir 37 vikna meðgöngu

Ef þú heldur að legvatnið sé byrjað að renna er mælt með að hafa samband við fæðingarvaktina.

Taktu eftir hvernig legvatnið er á litinn en legvatn ætti að vera tært.

Í flestum tilvikum hefjast hríðir sjálfkrafa fljótlega eftir að legvatn byrjar að renna en einnig kemur til greina að setja fæðinguna af stað með lyfjum, til dæmis ef meira en sólarhringur líður án þess að fæðing fari af stað eða ef legvatnið er litað, t.d. grænt, brúnt eða blóðlitað.

Ef GBS hefur greinst í fæðingarvegi er mælt með að hefja sýklalyfjagjöf í æð um leið og legvatn er farið.

Ef legvatnsleki byrjar með greinilegri gusu og kollur barnsins hefur ekki verið skorðaður í síðustu mæðraskoðun eða ef barnið er ekki í höfuðstöðu er mælt með að leggjast á hliðina eða fara á fjóra fætur og fá aðstoð sjúkraflutningamanna til að flytjast í þeirri stöðu til skoðunar á fæðingarvaktina.

Nánari upplýsingar

Er legvatnið farið? - Hvað gerum við þá?

Farið legvatn - Ráðleggingar ef legvatn er farið eftir 37 vikna meðgöngu

Á meðgöngutímanum myndast þykkt slím í leghálsopinu sem stundum er kallað slímtappi.

Þetta slím getur losnað á síðustu dögum eða vikum meðgöngunnar þegar leghálsinn byrjar að mýkjast, styttast og jafnvel opnast.  Sumar konur verða varar við þennan slímtappa í formi þykkrar útferðar frá leggöngum sem getur ýmist verið ljós eða blóðlituð.

Þótt kona verði vör við slíka útferð þarf það ekki að þýða að fæðing sé yfirvofandi og enn geta verið margir dagar eða jafnvel vikur þar til fæðing fer af stað.

Ef mikið blæðir frá leggöngum, þ.e. meira en sem nemur um 1-2 matskeiðum (15-30ml), skaltu hafa samband við okkur á fæðingarvaktinni ef meðgöngulengdin er orðin meira en 22 vikur.

Betra er að hafa samband við:

  • göngudeild mæðraverndar á dagvinnutíma (s. 543 3253)   ef veruleg blæðing verður við 12-21 vikna meðgöngu.
  • meðgöngu- og sængurlegudeild utan dagvinnutíma (s. 543 3220) ef veruleg blæðing verður við 12-21 vikna meðgöngu.
  • bráðamóttöku kvenna (s.543 3266) þegar minna en 12 vikur eru liðnar af meðgöngunni

Algengara er að blæðing frá leggöngum á meðgöngu sé lítil blettablæðing eða blóðlitað slím í buxum eða salernispappír og getur hún ýmist verið rauðleit, bleikleit eða brúnleit. Slík smáblæðing getur til dæmis komið fram eftir samfarir eða ef kona þjáist af hægðatregðu.

Æskilegt er að bera slíka smáblæðingu undir ljósmóður eða lækni í meðgönguvernd konunnar.

Einnig getur smáblæðing komið fram í upphafi fæðingar.

Lengd eðlilegrar meðgöngu getur verið allt frá 37 að 42 vikum.

Áætlaður fæðingardagur samkvæmt síðustu blæðingum eða ómskoðun er miðaður við 40 vikna meðgöngu og getur því verið von á fæðingunni í allt að þrjár vikur fyrir áætlaðan dag og í allt að tvær vikur eftir hann.

Almennt er talið öruggast að fæðing fari af stað af sjálfu sér og ekki er mælt með að fæðing hjá hraustum konum með enga áhættuþætti sé gangsett fyrr en meðgangan nálgast eða hefur náð 42 vikum.

Ef kona velur að bíða með eða afþakka gangsetningu er mælt með að fylgjast vel með heilsu og líðan móður og barns.

Hjá konum með áhættuþætti er metið eftir aðstæðum hvort og hvenær ráðlagt er að hefja fæðingu með gangsetningu.

Nánari upplýsingar

Lengd meðganga Áhætta eða óþarfa áhyggjur?

Fjölskyldan dvelur á fæðingarvaktinni í um tvær klukkustundir eftir fæðingu barnsins. 

Fylgjan fæðist og athugað er hvort þarf að sauma spangarsvæði.

Barnið fer yfirleitt á brjóst, er vigtað, mælt og skoðað af ljósmóður, og foreldrum er boðin k-vítamínsprauta fyrir barnið.

Leitast er við að aðskilja ekki móður og barn á þessum mikilvæga og viðkvæma aðlögunartíma.

Að þessum tíma loknum flyst fjölskyldan gjarnan á meðgöngu- og sængurlegudeild þar sem hún dvelur í 4-72 klukkustundir eftir aðstæðum.

Að lokinni útskriftarskoðun barnalæknis geta flestar fjölskyldur útskrifast í heimaþjónustu hjá ljósmóður sem sinnir fjölskyldunni fyrstu dagana eftir fæðingu.

Ef fæðingin hefur gengið vel er hægt að útskrifast beint af fæðingarvaktinni í heimaþjónustu ljósmæðra en þá er mælt með því að fjölskyldan dveljist á deildinni í fjórar klukkustundir og að barnið sé skoðað af barnalækni fyrir heimferð.

Nánari upplýsingar

Þriðja stig fæðingar. - Hvað er það og hvaða val hef ég um meðferð?

K-vítamín fyrir nýbura. Hvers vegna? 

Hvers vegna brjóstagjöf?

Sængurlega heima - Upplýsingar um heimaþjónustu ljósmæðra 


 


Myndbönd: íslenska, English, Polskie

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir
Af hverju ekki?