Hvað er klórgas?

Klórgas er eitruð lofttegund sem myndast þegar klór og sýra blandast saman. Hversu mikið gas myndast fer eftir magni efnanna. Til dæmis má nefna að blöndun efna sem algeng eru á heimilum, þ.e. bleikiklórs og salernishreinsiefna, getur leyst þessa eitruðu lofttegund úr læðingi og valdið þeim sem vinnur með efnin óþægindum. Þó er lítil hætta á að alvarleg eitrun hljótist af í svona tilfellum nema verið sé að vinna með óvenju mikið af efnunum eða í lengri tíma.

 

Hætta á eitrun er einkum við innöndun eða beina snertingu við gufurnar

Eitrunareinkenni koma fljótt í ljós og eru sviði í augum og tárarennsli, sviði í nefi, hálsi og munni, hósti og öndunarerfiðleikar. Í alvarlegum tilfellum getur efnið valdið lungnabjúg.

Ef fólk andar að sér klórgasi er mikilvægt að fara út í ferskt loft sem
allra fyrst og ef framangreind einkenni koma fram skal leita læknis eða hringja
í eitrunarmiðstöðina og leita ráða.