Leit
Loka

Iðjuþjálfun

Iðjuþjálfar á Landspítala sinna öllum deildum eftir þörfum og þjónusta einstaklinga sem þurfa aðstoð við að bæta færni sem skerðist við slys eða veikindi. Færnisskerðing getur tengst því að sinna daglegum viðfangsefnum, eigin umsjá, að sinna heimili, að sinna fjölskyldu og vinum, tómstundaiðju, námi og/eða vinnu. Iðjuþjáfi metur í samvinnu við einstaklinginn, og jafnvel nánustu aðstandendur, hvaða skyldur eru honum mikilvægar og hvað hann langar til að geta gert. Út frá því mati er veitt fræðsla, ráðgjöf og/eða þjálfun, eftir þörfum hverju sinni.

Banner mynd fyrir  Iðjuþjálfun

Hagnýtar upplýsingar

Yfiriðjuþjálfi er Sigrún Garðarsdóttir
Netfang: sigrgard@landspitali.is 
Sími: 543 9108 og 825 5072

Ef áhugi er fyrir að starfa við landspítala er hægt að senda inn fyrirspurnir til yfiriðjuþjálfa Landspítala, Sigrúnu Garðarsdóttur.

Iðjuþjálfun BUGL

Starfsemi í iðjuþjálfun er frá kl. 8:00 til 16:00 alla virka daga.
Símanúmer skiptiborðs: 543 4300 
 
Deildarstjóri faghópa: Guðlaug María Júlíusdóttir, gudljul@landspitali.is 
BUGL er að Dalbraut 12, Reykjavík

Á barna- og unglingageðdeild Landspítala, BUGL, er tekið á móti börnum og unglingum upp að 18 ára aldri vegna geð- og þroskaraskana. Þar er veitt sérhæfð þjónusta sem miðar að þörfum barna og fjölskyldna þeirra.

Samvinna er við þá sem sinna frumgreiningu, svo sem heilsugæslu og félagsþjónustu auk annarra fagaðila sem sinna barni og fjölskyldu í nærumhverfi.
Á BUGL vinna iðjuþjálfar í þverfaglegum teymum á göngu- og legudeild.

Líkanið um iðju mannsins liggur til grundvallar þjónustu iðjuþjálfa á BUGL. Lykilþættir í samspili barns og umhverfis endurspeglast í ákveðnum lykilþáttum sem eru vilji, vanamynstur, framkvæmdageta, færni við iðju og aðlögun sem iðjuvera.

Þá er einnig stuðst við kenningar um skynúrvinnslu en þær fjalla meðal annars um um túlkun og úrvinnslu einstaklinga á hinum ýmsu áreitum og hvernig slíkt getur haft áhrif á þroska og lærdómsgetu þeirra.

Kenningar um skynúrvinnslu geta veitt góða innsýn í hvernig hægt ersé að skilja og komast til móts við þarfir barna með ódæmigerða skynúrvinnslu, en stór hluti skjólstæðinga á BUGL skynja umhverfið á annan hátt en flestir.

Iðjuþjálfar meta og veita íhlutun eða ráðgjöf hjá sjúklingum sem eiga erfitt með eigin umsjá, sinna daglegum skyldum, stunda skólann, sinna áhugamálum og/eða félagsleg samskipti.

Hér er átt við þátttöku barnsins og færni við að inna af hendi dagleg viðfangsefni á:

  • heimili
  • í skóla
  • við leik og tómstundaiðju

Ýmsir umhverfisþættir eru athugaðir og metið hvort þeir ýti undir eða torveldi þátttöku og virkni. Til þess að afla upplýsinga um ofangreinda þætti eru notuð ýmis matstæki.

Íhlutun

Iðjuþjálfi metur í samvinnu við skjólstæðinga sína og/eða umönnunaraðila á hvaða formi íhlutun fer fram. Kröfur eru aðlagaðar að getu hvers og eins og getur íhlutun farið fram með einstaklingi, fjölskyldu, skóla og/eða í hóp. Helstu markmið með íhlutun eru að styrkja skjólstæðinginn við að sinna daglegri iðju, að sinna skyldum sínum og það sem hann langar að gera.

Sé vísbending um þörf fyrir iðjuþjálfun þá tekur iðjuþjálfi „fyrsta viðtal“ við barn og foreldra og ákvarðar í framhaldi þörf fyrir þjónustu.

Göngudeild

Á göngudeild berst iðjuþjálfa tilvísun frá öðrum fagaðilum innan síns teymis. Við skimun á þörf fyrir iðjuþjálfun styðst iðjuþjálfi við upplýsingar frá foreldrum og öðrum fagaðilum.

Legudeild

Á legudeild sinnir iðjuþjálfi þeim börnum sem hann og teymi deildar metur að þurfi á íhlutun iðjuþjálfa að halda. Iðjuþjálfi metur stöðu barnsins og gerir út frá því meðferðaráætlun í samvinnu við barn og foreldra. Sú íhlutun getur falið í sér marga þætti en jafnframt sinnir iðjuþjálfi á deild deildarmeðferð í samvinnu við annað starfsfólk deildarinnar.

Iðjuþjálfun Fossvogi og Hringbraut

Starfsemi í iðjuþjálfun er frá kl. 8:00 til 16:00 alla virka daga.

Símanúmer:

  • Fossvogur: 543 9141
  • Hringbraut: 543 9313

Yfiriðjuþjálfi í Fossvogi og við Hringbraut:

Guðríður Erna Guðmundsdóttir
netfang: gudrideg@landspitali.is
sími: 543 9133 / 825 9435

Landspítali í Fossvogi og við Hringbraut er bráðasjúkrahús þar sem einstaklingar koma í bráðatilvikum.

Iðjuþjálfun á þessum stöðum er rekin sem ein eining. Í Fossvogi er iðjuþjálfun staðsett á 1. hæð í B álmu (B1) og á 4. hæð í D álmu (14D) við Hringbraut.
Iðjuþjálfar sinna þar öllum deildum eftir þörfum og þjónusta einstaklinga sem eiga erfitt með að takast á við athafnir daglegs lífs vegna slysa eða veikinda.
Orsakir færniskerðingar geta verið af ýmsum toga m.a. af völdum sjúkdóma eins og heilabilunar, krabbameins, hjarta-, lungna-, smit- og taugasjúkdóma. Einnig í kjölfar liðskiptaaðgerða, heilablóðfalls og/eða annarra áfalla.

Í iðjuþjálfun bæði í Fossvogi og við Hringbraut eru þjálfunareldhús og salir þar sem fram fer mat á færni/iðjuvanda, íhlutun, þjálfun og virkni eftir því sem við verður komið.

Iðjuþjálfun í Fossvogi og við Hringbraut er skjólstæðings- og iðjumiðuð. Iðjuþjálfar vinna fyrst og fremst eftir Kanadíska færnilíkaninu (CMOP-E) þar sem unnið er að því að efla iðju og lögð er áhersla á samspil einstaklings, iðju og umhverfis.

Notast er við þjónustuferlið Occupational Therapy Intervention Process Model (OTIPM). Eftir því sem við á er stuðst við aðrar kenningar og líkön t.d. kenningar um öldrun, Valdeflingu, Lífaflfræðilíkanið og A-ONE.

Mats- og markmiðslota

Mat

Iðjuþjálfar sinna yfirgripsmiklu heildrænu mati á færni skjólstæðinga sinna.
Eftir því sem við á er færni skjólstæðings metin við athafnir daglegs lífs (ADL), gerð er skimun á vitrænni getu, aðstæður skjólstæðings metnar svo og hjálpartækjaþörf.

Við mat á færni og getu eru í flestum tilvikum notuð viðurkennd stöðluð matstæki, spurninga- og gátlistar. 

Eftir mat á færni við iðju miðlar iðjuþjálfi niðurstöðum matsins til skjólstæðingsins. Í kjölfarið er gerð íhlutunaráætlun í samráði við skjólstæðinginn og teymi deildarinnar.
Iðjuþjálfar eru virkir þátttakendur í þverfaglegri teymisvinnu á deildum spítalans þar sem unnið er í nánu samstarfi við aðrar fagstéttir. Áætlun er skipulögð með það að markmiði að auka færni skjólstæðingsins og undirbúa undir næstu endurhæfingarskref eða útskrift.

Við íhlutun iðjuþjálfa er valin ein eða fleiri af eftirtöldum leiðum; færniþjálfun og/eða að kenna skjólstæðingi nýjar leiðir til að framkvæma athafnir daglegs lífs, aðlögun á umhverfi, fræðsla og ráðgjöf.

Iðjuþjálfar veita skjólstæðingum og hópum fræðslu, kennslu og ráðgjöf varðandi hjálpartæki, líkamsbeitingu og fleira. Auk þess sem þeir fara í heimilisathuganir.
Með fræðslu er leitast við að stuðla að aukinni sjálfsbjargargetu og auknu öryggi heima við m.a. til að fyrirbyggja byltur.

Eftir handarskaða getur íhlutun falist í spelkugerð. Aðallega er um að ræða spelkur fyrir efri útlimi og þá helst vegna skaða, skipulagðra aðgerða og eftir bruna.
Spelkur geta þjónað margvíslegu hlutverki og má þar nefna hvíldarspelkur, spelkur til að auka færni og til að koma í veg fyrir kreppur. Spelkugerð er einnig sinnt í göngudeildarþjónustu.

Þverfagleg teymisvinna fer einnig fram utan deilda, iðjuþjálfar starfa t.d. í MND teymi, Endurhæfingarteymi krabbameinsgreindra og Parkinson-teymi.
Þá eiga þeir samstarf við ýmsa utan Landspítala og má þar helst nefna starfsfólk hjá Sjúkratryggingum Íslands, heilsugæslu, heimahjúkrun, félagsþjónustu, öðrum sjúkrastofnunum, hjúkrunarheimilum og svæðisskrifstofu fatlaðra.

Einnig er samstarf við sérverslanir með hjálpartæki og heilbrigðisvörur og ýmsa verktaka.


Beiðnir um iðjuþjálfun berast frá deildum spítalans ýmist frá læknum, hjúkrunarfræðingum eða öðru fagfólki. Í samráði við teymi hverrar deildar er gerð áætlun um meðferð.

Iðjuþjálfun geðþjónusta

Starfsemi í iðjuþjálfun er frá kl. 8:00 til 16:00 alla virka daga.
Yfiriðjuþjálfi geðþjónustu: Auður Hafsteinsdóttir, s: 543 4004 og 825 3582

Iðjuþjálfun í endurhæfingu á Kleppi og Laugarási 

  • Endurhæfingartímabil tekur mið af hverri deild fyrir sig.
  • Áhersla lögð á endurhæfingu, tengingu út í samfélagið.
  • Einstaklings- og hópmeðferð, ráðgjöf og eftirfylgni
  • Iðjuþjálfar starfa á endurhæfingargeðdeildum, ýmsum teymum í göngudeild og Batamiðstöð.
  • Fjölritun veitir þjónustu á fjölfjöldun prentefnis, s.s. ljósritun, fjölritun, heftun og gormun og er í samstarfi við Birgðastöð og Innkaupadeild LSH. Fjölritun er hluti af starfsemi geðendurhæfingar iðjuþjálfunar á Kleppi og hefur verið stökkpallur fyrir marga til að stíga skref út í vinnu/samfélagið á ný eftir veikindi 

Iðjuþjálfun Hringbraut 

  • Bráðaþjónusta
  • Áhersla lögð á mat, greiningu og tengingu út í samfélagið
  • Einstaklings- og hópmeðferð, ráðgjöf og eftirfylgni

Iðjuþjálfun er einstaklingsmiðað ferli sem leitast við að auka færni og þátttöku í að takast á við daglegt líf innan sem utan spítalans.

Litið er á einstaklinginn í eigin umhverfi og unnið er með styrkleika viðkomandi. Í iðjuþjálfun er notuð margs konar iðja til að efla færni sem tengist daglegu lífi á heimili, í vinnu eða við leik og tómstundir. Leitast er við að skapa tækifæri til að takast á við verkefni daglegs lífs sem vekja áhuga, eru mikilvæg, geta veitt gleði og aukið sjálfstraust.

Markmið iðjuþjálfunar er að efla og viðhalda líkamlegri, andlegri og félagslegri færni í daglegu lífi.

Iðjuþjálfar í geðendurhæfingu styðjast við hugmyndafræði Líkansins um iðju mannsins (Model of Human Occupation), valdeflingar (empowerment) og batamiðaðrar þjónustu (recovery model).

Þjónusta iðjuþjálfa felst í mati, greiningu, fræðslu, ráðgjöf og eftirfylgni til sjúklinga og aðstandenda þeirra. Þessi vinna fer bæði fram í einstaklings- og hópmeðferðum.

Iðjuþjálfar á legu- og göngudeildum meta þörf fyrir iðjuþjálfun í þverfaglegri samvinnu við aðra teymismeðlimi á hverri deild fyrir sig.

Mat

Iðjuþjálfar hefja þjónustuferli sitt á því að fá upplýsingar frá skjólstæðingi sem leiða til þess að þeir fái mynd af iðju hans.  Það gera þeir með hinum ýmsu matstækjum.
Í því felst að gera sér grein fyrir iðjusögu hans í grófum dráttum, reynslu, daglegu lífi og störfum, áhugamálum, gildum og þörfum. Skjólstæðingur gerir grein fyrir þeim iðjuvanda sem hann upplifir í sínu daglega lífi og hvað það er sem hann kýs að sinna og setur sér markmið í samvinnu við iðjuþjálfa.

Í sumum tilfellum eiga skjólstæðingar erfitt með að gera grein fyrir iðjuvanda sínum sökum veikinda þegar þjónusta iðjuþjálfa hefst. Markmiðið getur þá oft á tíðum verið að mæta reglulega í iðjuþjálfun og sinna þeim verkefnum sem lögð eru fyrir.
Fyrir marga getur það markmið verið nógu krefjandi til að byrja með en þegar einstaklingar eru farnir að ná tökum á því eru markmiðin endurmetin með frekari þjálfun í huga. 

Íhlutun

Íhlutun sem iðjuþjálfar á geðsviði veita er skjólstæðingsmiðuð og því afar fjölbreytt. Samkvæmt þjónustuferli MOHO fellur íhlutunin í flestum tilvikum undir virkni við iðju (gjörðir, hugsanir og tilfinningar). Íhlutun getur farið fram bæði sem einstaklingsþjálfun, hópþjálfun eða sem ráðgjöf, stuðningur, upplýsingar og eftirfylgd.

Einstaklingsþjálfun

  • Hentar þeim sem þurfa á auknum stuðning að halda
  • Getur farið fram á viðkomandi deild, úti í samfélaginu eða í heimahúsi.
  • Tenging við ýmis úrræði í samfélaginu og nærumhverfi einstaklingsins.

Hópþjálfun

  • Hentar þeim sem þurfa aukna þjálfun í félagslegum samskiptum
  • Einstaklingar vinna saman í hóp
  • Hver einstaklingur setur sér markmið sem unnið er að í hópþjálfuninni.

Eftirfylgni, stuðningur, upplýsingar og ráðgjöf

  • Hentar þeim sem þurfa frekari íhlutun í tengslum við útskriftarferlið, t.d. við jafnvægi og þátttöku í daglegu lífi.
  • Við útskrift getur verið þörf fyrir eftirfylgd iðjuþjálfa, t.d. áframhaldandi þjálfun út í samfélaginu
Beiðni um iðjuþjálfun berast frá legu- og göngudeildum, geðlæknum og fagfólki geðsviðs munnlega á teymisfundum/planfundum eða rafrænt.

Iðjuþjálfun Grensási

 
Starfsemi í iðjuþjálfun er frá kl. 8:00 til 16:00 alla virka daga.
 
Símanúmer iðjuþjálfunar: 543 9121 

Yfiriðjuþjálfi:
Sigrún Garðarsdóttir

netfang: sigrgard@landspitali.is
sími: 543 9108 og 825 5072

Heimilisfang:
Landspítali Grensási
við Álmgerði, 108 Reykjavík

Einstaklingar sem koma í endurhæfingu á Grensási eftir slys eða veikindi eiga flestir í erfiðleikum með að takast á við sitt daglega líf. Hlutir sem áður voru einfaldir eins og að klæðast, elda mat, vinna vinnuna sína, keyra bíl og stunda áhugamál geta reynst flóknir og óyfirstíganlegir. Sérþekking iðjuþjálfa felst í því að greina styrkleika einstaklinga og hvað reynist þeim erfitt við dagleg verk, finna leiðir til að yfirstíga þessa erfiðleika og þjálfa aftur upp færni til að takast á við daglegt líf. 

Samhliða færniþjálfun til eigin umsjár, heimilisstarfa, atvinnu og tómstunda er farið í heimilis- og vinnustaðarathuganir og mat á akstursfærni þegar þörf krefur. Auk þess eru veittar ráðleggingar við val og útvegun hjálpartækja.

Iðjuþjálfun í Fossvogi og við Hringbraut er skjólstæðings- og iðjumiðuð. Iðjuþjálfar vinna fyrst og fremst eftir kanadíska færnilíkaninu (CMOP-E) þar sem unnið er að því að efla iðju og lögð er áhersla á samspil einstaklings, iðju og umhverfis. Notast er við þjónustuferlið Occupational Therapy Intervention Process Model (OTIPM). Eftir því sem við á er stuðst við aðrar kenningar og líkön t.d. kenningar um öldrun, Valdeflingu, Lífaflfræðilíkanið og A-ONE.

Mats- og markmiðslota

Iðjuþjálfar á Grensási nota þjónustuferlið OTIPM til að leiða þjónustu sína. Þjónustan flokkast í þrjá hluta þ.e. mat, íhlutun og endurmat.

Mat

Byrjað er á að koma á tengslum og skjólstæðingsmiðuðu umhverfi til að þróa gagnkvæmt traust milli þjónustuþega og iðjuþjálfa. Í því tilefni er m.a. aflað skjólstæðingsmiðaðra upplýsinga um iðju, aðstæður og forgangsröðun með aðstoð gát- og spurningalista ásamt matstækjum s.s. COPM og OSA. Í framhaldi af þessari upplýsingaöflun fer fram mat á framkvæmd við iðju til að afla upplýsinga um hvar skóinn kreppir þ.e. hver vandinn er og hvað er að valda honum en það getur verið af líkamlegum, vitrænum og/eða andlegum toga en einnig getur umhverfið í víðum skilningi verið stór áhrifavaldur. Við matið eru notuð mats- og mælitæki eins og A-ONE, AMPS, gátlisti um ökufærni og heimilisathugun, mælitæki til að mæla grip- og fingragripskraft, gróf- og fínhreyfingar svo eitthvað sé nefnt. Þegar búið er að greina iðjuvandann þá eru sett markmið í samráði við skjólstæðinginn og þau skráð niður.

Mats- og markmiðslota

Í íhlutun eru valdar ein eða fleiri leiðir af fjórum mögulegum sem byggja á faglíkönum til íhlutunar til að leysa iðjuvandann. Leiðirnar eru nefndar: Jöfnunarlíkan (compensatory model), Leiknilíkan (model of occupational skills training), Lagfæringalíkan (model for enhancement of person factors and body functions), og Fræðslulíkan (model for education and teaching), þ.e íhlutun iðjuþjálfans getur falist í færniþjálfun og/ eða að kenna viðkomandi nýjar leiðir til að framkvæma athafnir daglegs lífs (eigin umsjá, heimilisstörf, vinna, áhugamál o.fl.), að aðlaga umhverfi viðkomandi s.s. á heimili eða vinnustað, fræðslu, ráðgjöf og útvegun og kennslu í notkun hjálpartækjaÍ íhlutun eru valdar ein eða fleiri leiðir af fjórum mögulegum sem byggja á faglíkönum til íhlutunar til að leysa iðjuvandann.

Leiðirnar eru nefndar: Jöfnunarlíkan (compensatory model), Leiknilíkan (model of occupational skills training),

Lagfæringalíkan (model for enhancement of person factors and body functions), og Fræðslulíkan (model for education and teaching), þ.e íhlutun iðjuþjálfans getur falist í færniþjálfun og/ eða að kenna viðkomandi nýjar leiðir til að framkvæma athafnir daglegs lífs (eigin umsjá, heimilisstörf, vinna, áhugamál o.fl.), að aðlaga umhverfi viðkomandi s.s. á heimili eða vinnustað, fræðslu, ráðgjöf og útvegun og kennslu í notkun hjálpartækja

Eftir að íhlutun hefur átt sér stað er framkvæmd endurmetin með mats- eða mælitækjum og viðkomandi útskrifast eða markmið eru endurskoðuð og ferlið hefst þá á ný. Í gegnum allt ferli viðkomandi á Grensási er unnið heildrænt og í öflugri þverfaglegri teymisvinnu í samvinnu við skjólstæðinginn.
Iðjuþjálfar meta þörf fyrir iðjuþjálfun í samvinnu við skjólstæðinginn og aðra teymismeðlimi.

Iðjuþjálfun Landakoti

Staðsetning: Landakot, Túngötu 26, 101 Reykjavík 

Símanúmer deildar: 543 9834/543 9838 

Yfiriðjuþjálfi:Svanborg Guðmundsdóttir
Netfang: svanborg@landspítali.is
Símanúmer: 543 9841/824 8717

Á Landakot koma aldraðir frá öðrum deildum Landspítala eða úr heimahúsi. Þar fer fram greining og mat á heilsufari og endurhæfing.

Iðjuþjálfar eru hluti af þverfaglegu teymi á öllum deildum Landakots.

Iðjuþjálfunin er staðsett á þriðju hæð í K-álmu og samanstendur aðstaðan meðal annars af:

  • vinnustofu
  • þjálfunarsal
  • tölvuherbergi
  • betri stofu 
  • þjálfunareldhúsi

Þjónustuferlið sem unnið er eftir kallast OTIPM (Occupational Therapy Intervention Process Model).

Hugmyndafræðin kemur úr ýmsum áttum og tekur mið af ólíkum skjólstæðingshópum og aðstæðum hverju sinni.

Sem dæmi má nefna A-ONE, kanadíska færnilíkanið (CMOP-E), líkanið um iðju mannsins (MOHO), lífaflfræðilíkanið, endurhæfingarlíkanið, valdeflingu (empowerment) og öldrunarkenningar.

Mats- og markmiðslota

Iðjuþjálfar á Landakoti hafa sérþekkingu á daglegri iðju aldraðra.

Með daglegri iðju er átt við athafnir eins og klæðnað, snyrtingu, borðhald, akstur og tómstundir.

Iðjuþjálfar veita skjólstæðingsmiðaða þjónustu, vinna lausnamiðað og leggja áherslu á styrkleika skjólstæðinga sinna.  

Mat

Stór þáttur í starfi iðjuþjálfa á Landakoti felst í að meta líkamlega og vitræna getu skjólstæðinga sem hafa áhrif á færni daglegs lífs. Til þess styðjast iðjuþjálfar við ýmis matstæki til að greina verk og framkvæmdargetu, beita bæði áhorfi og taka viðtöl.
Farið er yfir viðfangsefni sem skjólstæðingurinn fæst við í sínu daglega lífi, bæði þau sem ganga vel og þau sem hann á erfitt með að sinna.
Íhlutunaráætlun er gerð í samráði við skjólstæðing í framhaldinu.

Iðjuþjálfar meta þörf fyrir hjálpartæki og meta auk þess hvort þörf sé á heimilisathugun.
Mikilvægt getur verið að fara heim til skjólstæðinga til að meta færni þeirra í eigin umhverfi. Mat á færni við akstur er framkvæmt í samstarfi við ökukennara þegar það á við.

Sjúkdómar og slys geta haft áhrif á líkamlega og vitræna færniþætti sem nauðsynlegir eru við akstur. Ákveðnum verklagsreglum er fylgt til þess að meta hvort og þá hvenær farið er í ökumat.

Helstu matstæki

Íhlutun

Íhlutun sem iðjuþjálfar á Landakoti veita er skjólstæðingsmiðuð og er endurhæfingin því afar fjölbreytt.

Samkvæmt þjónustuferli OTIPM fellur íhlutunin í flestum tilvikum undir leikninálgun og jöfnunarnálgun. Einnig kemur fyrir að aðferðir sem falla undir styrkingarnálgun og fræðslunálgun séu notaðar (sjá mynd).

Íhlutunin getur m.a. falist í að kenna nýjar leiðir við að framkvæma daglegar athafnir, færniþjálfun og aðlögun á heimili, auk þess sem iðjuþjálfar veita fræðslu og ráðgjöf til skjólstæðinga og aðstandenda þeirra. Í heimilisathugunum er t.d. veitt ráðgjöf varðandi leiðir til þess að auka öryggi og draga úr byltuhættu.

Endurhæfingin fer bæði fram sem einstaklingsþjálfun og í hópum. Áhersla er lögð á að bæta andlega líðan og félagslega hæfni með ýmis konar hópastarfi.
Útvegun, prófun og kennsla í notkun hjálpartækja er stór þáttur í starfi iðjuþjálfa á Landakoti.

Þá sjá iðjuþjálfar um spelkugerð þegar þess er þörf. Iðjuþjálfar sækja um hjálpartæki fyrir skjólstæðinga til Hjálpartækjamiðstöðvar Sjúkratrygginga Íslands (SÍ).

Endurmat

Færni skjólstæðings er endurmetin eftir að íhlutun hefur átt sér stað og íhlutunaráætlun aðlöguð eftir þörfum og vilja skjólstæðings.

Við útskrift getur verið þörf fyrir eftirfylgd iðjuþjálfa t.d. vegna hjálpartækja og áframhaldandi þjálfunar á öðrum stöðum.

Legudeildir og dagdeild: Þörf fyrir iðjuþjálfun er metin í samvinnu við skjólstæðinginn og teymismeðlimi.

Göngudeildir: Iðjuþjálfar fá senda beiðni fyrir skjólstæðinga sem hafa þörf fyrir iðjuþjálfun á minnismóttöku. Allir sem koma á byltu- og beinverndarmóttöku fá þjónustu iðjuþjálfa.

Iðjuþjálfun, tengd starfsemi

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir
Af hverju ekki?