08:00-12:00 á föstudögum | Svarað er í síma: 8:00-12:00 og 13:00-15:00
Dag- og göngudeild taugalækningadeildar
Sérhæfð göngudeildarþjónusta við sjúklinga með taugasjúkdóma
Guðrún Jónsdóttir
gudjonsd@landspitali.isElías Ólafsson
eliasol@landspitali.is
Hafðu samband
Hagnýtar upplýsingar
Sérhæfð göngudeildarþjónusta við sjúklinga með taugasjúkdóma á borð við blóðrásartruflanir í heila, hreyfitaugungahrörnun (MND), heila- og mænusigg (MS), flogaveiki og Parkinsonssjúkdóm. Gerðar eru ýmsar rannsóknir til greininga á sjúkdómum í mið- og úttaugakerfi.
Þjónustu veita læknar, hjúkrunarfræðingar, næringarráðgjafar, sjúkraþjálfarar, iðjuþjálfar, talmeinafræðingar, félagsráðgjafar, prestar, ritarar og sálfræðingar.
- Skilaboð til lækna/læknaritara vegna vottorða, tímapantana eða lyfjaendurnýjunar sérmerktra taugalyfja: 543 1000
- Endurnýjun allra annarra lyfja er í gegnum heilsugæslustöð viðkomandi - Breyta bókuðum tíma eða boða forföll: 543 4010 og 543 4407
- Skilaboð til hjúkrunarfræðinga: Símar 543 4010 og 543 6119
- Fax: 543 4818
- Símsvörun er almennt frá 8:00-12:00 og 13:00-15:00 virka daga.
MND sjúkdómurinn er hreyfitaugungahrörnun sem einkennist af minnkandi styrk vöðva og rýrnun þeirra.
Í bæklingi sem hér fylgir eru upplýsingar um þá stuðnings- og meðferðaraðila sem MND sjúklingar og aðstandendur þeirra geta leitað til.