Leit
Loka

Samkvæmt reglugerð nr. 467/2015 um menntun, réttindi og skyldur lækna og skilyrði til að hljóta almennt lækningaleyfi og sérfræðileyfi skipaði heilbrigðis- og velferðarráðherra þrjá sérfræðilækna í mats- og hæfisnefnd (e. Evaluation and Accreditation Committee) um starfsnám til að öðlast almennt lækningaleyfi og um sérnám í læknisfræði. Nefndin skal kalla til sérfræðinga innan sérsviða læknisfræði til álitsgjafa, eftir þörfum.

Nefndin metur og staðfestir marklýsingar fyrir starfsnám til starfsleyfis skv. 4. gr. og samþykkir marklýsingu einstakra sérnámsbrauta fyrir formlegt sérnám skv. 7. og 8. gr., sbr. 10. gr. Nefndin metur jafnframt hæfi heilbrigðisstofnunar eða deildar heilbrigðisstofnunar til að öðlast viðurkenningu sem kennslustofnun fyrir starfsnám til lækningaleyfis skv. 4. gr. og til að annast sérnám skv. 7. og 8. gr.

Nefndin setur sér starfsreglur sem staðfestar eru af heilbrigðisráðherra. Í þeim er meðal annars kveðið á um þau viðmið sem nefndin skal hafa til hliðsjónar við mat á marklýsingum og stofnunum, og hvernig samráði skuli háttað við stofnanir sem metnar eru hverju sinni.


  • Reynir Tómas Geirsson, tilnefndur af Læknadeild Háskóla Íslands, formaður
  • Magnús Karl Magnússon, tilnefndur af Embætti landlæknis
  • Kristín Huld Haraldsdóttir, tilnefnd af Læknafélagi Íslands
  • Geirný Ómarsdóttir hjúkrunarfræðingur, tilnefnd af fagráði Landspítala,
  • Guðrúnu Svanborgu Hauksdóttur yfirlæknir, tilnefnd af fagráði Landspítala

  • Ingibjörg Georgsdóttir, tiln. af Læknadeild Háskóla Íslands
  • Hrefna Þengilsdóttir, tiln. af Embætti landlæknis
  • Már Kristjánsson, tiln. af Læknafélagi Íslands

Starfsreglur mats- og hæfnisnefndar er að finna á vef heilbrigðisráðherra sjá hér >>

Nefndin er skipuð af heilbrigðisráðherra frá 17. ágúst 2015 til 16. ágúst 2019.

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir
Af hverju ekki?