Vísindi og menntun

Landspítali er ein helsta menntastofnun landsins á sviði heilbrigðisvísinda með öflugu háskólastarfi.  Þar er kröftugt vísindastarf og hefur birting ritrýndra greina starfsmanna aukist stöðugt. Rannsakendur hafa samstarf á innlendum og alþjóðlegum vettvangi og sækja verulegt fé til vísindarannsókna í innlenda og erlenda samkeppnissjóði.

Flestir nemendur í heilbrigðisvísindum fá sína klínísku þjálfun á spítalanum.  Nemendurnir eru árlega meira en 1.300 talsins; framhaldsskólanemendur, háskólanemendur úr grunn- og framhaldsnámi og nemendur í framhalds- og sérfræðinámi að loknu háskólanámi.  Meistara- og doktorsnemum fjölgar stöðugt á spítalanum.

Vísindastarfsemi á LSH (yfirlitsskýrslur)