Styðjum starfsemi Landspítala
Landspítali metur ákaflega mikils þann stuðning sem honum er sýndur þegar sjúklingar, aðstandendur og aðrir styðja spítalann með beinum styrkjum, kaupum á minningarkortum eða með sérhverjum öðrum hætti sem að gagni kemur. Stuðningurinn sýnir ekki aðeins hlýjan hug til spítalans heldur gerir Landspítala fært að efla og þróa starfsemi sína í þágu allra landsmanna.
Styrktar- og minningargjafasjóður LSH var formlega stofnaður haustið 2009.
- Hlutverk sjóðsins er að taka á móti, ávaxta og ráðstafa styrkjum og öðrum framlögum sem sjúklingar, aðstandendur, velunnarar og aðrir vilja láta af hendi rakna til starfsemi Landspítala. Aðild eiga m.a. ýmsir sérsjóðir deilda og sviða á hinum ýmsu deildum og sviðum Landspítala.
- Tekjur sjóðsins eru gjafafé, styrkir, minningargjafir og áheit sem tengjast starfsemi Landspítala.
Hægt er að styrkja Landspítala með tvennum hætti. Greitt er fyrir með greiðslukorti.
- Beinir styrkir (valið að styrkja ákveðna þætti starfseminnar eða verkefni)
- Minningarkort (minningarsjóðir valdir úr lista)
Nánari upplýsingar í síma 543 1000.
