Leit
Loka

Hagnýtar upplýsingar

Meðferðin fer fram í hópi og byggist á fræðslu og heimaverkefnum, þar sem kenndar eru aðferðir til að takast á við kvíða og þunglyndistilfinningar.

Í hverjum hópi eru 15-25 þátttakendur en tveir sálfræðingar veita meðferðina.

Meðferðin fer fram einu sinni í viku, tvær stundir í senn, í fimm vikur.

Áður en meðferðin hefst fær hver þátttakandi einstaklingsviðtal hjá sálfræðingi, þar sem vandi hans er metinn

Meðferðin er fyrir alla þá sem eiga við tilfinningalegan vanda að stríða, þótt áherslan sé á kvíða og þunglyndiseinkenni.

Ekki er óalgengt að slíkur vandi komi upp hjá fólki þegar það stendur á tímamótum í lífinu, s.s. við veikindi, skilnað, ástvinamissi og jafnvel við fæðingu barns.

Þá þjást sumir af kvíða og þunglyndi án þess að gera sér grein fyrir því hvers vegna.

Algeng einkenni þunglyndis eru:
Orkuleysi, vanmáttarkennd, einbeitingarerfiðleikar, óákveðni, svefntruflanir, framtaksleysi og breyting á matarlyst.

Algeng einkenni kvíða eru:
Vanmáttur, óöryggi, meltingartruflanir, ör hjartsláttur, sviti, spennuverkir, höfuðverkir, svimi, óróleiki, svefntruflanir.

Megin markmið meðferðarinnar er að þátttakendur læri og þjálfist í aðferðum til að takast á við ýmis tilfinningaleg vandamál, s.s. kvíða og þunglyndi.

Einnig er lögð áhersla á að þátttakendur fræðist um hvernig slík vanlíðan verður til.
Að meðferð lokinni fær hver þátttakandi einstaklingsviðtal við sálfræðing þar sem árangur hans er metinn.

Heilsugæslulæknir þinn mun í framhaldi af því fá í hendur upplýsingar um meðferð þína og getur því ráðlagt þér um framhaldsmeðferð ef þörf er á.
Þátttakendum verður boðið að koma í tvo eftirfylgdartíma, þann fyrri eftir tvo mánuði og þann síðari eftir sex mánuði, til þess meta stöðuna og rifja upp það helsta sem fjallað var um í meðferðinni.

Þátttakendur eru hvattir til að nýta sér þennan möguleika, bæði til þess að fá meiri aðstoð ef ekki hefur gengið nógu vel og einnig til þess styrkja árangur sinn þannig að hann vari lengur.
Meðferðin fer fram í húsakynnum heilsugæslunnar og hófst í september 2005.

Nánari upplýsingar um meðferðina og tímasetningar færðu hjá heimilislækni þínum og öðru starfsfólki heilsugæslustöðvarinnar.

Sálfræðingar á geðsviði Landspítalaháskólasjúkrahúss sjá um meðferðina og eru þeir bundnir samskonar trúnaði við þátttakendur og starfsfólk heilsugæslunnar.

Á geðsviði LSH hefur þessi meðferð verið í þróun undanfarin ár og rannsókn bendir til þess að hún skili þátttakendum góðum árangri.

HUGRÆN ATFERLISMEÐFERÐ VIÐ KVÍÐA OG ÞUNGLYNDI ER SAMSTARFSVERKEFNI:

  • GEÐSVIÐS LSH
  • HEILBRIGÐISRÁÐUNEYTISINS
  • HEILSUGÆSLUNAR Í REYKJAVÍK
  • HEILSUGÆSLUNAR LÁMÚLA
  • HEILSUGÆSLUNAR Á EGILSSTÖÐUM
  • HEILSUGÆSLUNAR Á ÍSAFIRÐI


ÚTGEFANDI:
LANDSPÍTALI – HÁSKÓLASJÚKRAHÚS
GEÐSVIÐ Í DESEMBER 2005

ÁBYRGÐARMAÐUR TEXTA:
HAFRÚN KRISTJÁNSDÓTTIR SÁLFRÆÐINGUR

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir
Af hverju ekki?