Leit
Loka

Hagnýtar upplýsingar

ADHD stafar af truflun í boðefnakerfi heila á stöðum sem gegna mikilvægu hlutverki í stjórn hegðunar.

Þessi truflun orsakast að mestu leyti af erfðaþáttum. Umhverfisþættir hafa þó einnig áhrif.

Athyglisbrestur með og án ofvirkni (ADHD og ADD).

Athyglisbrestur:

  • Einbeitingaerfiðleikar
  • Eru auðtrufluð
  • Gleymin
  • Hlustun ekki góð
  • Skipulagserfiðleikar
  • Erfitt með tímaskyn
  • Mjög hæg og róleg
  • Vanvirk
 Börn með ofvirkni:
  • Eiga erfitt með að sitja kyrr
  • Iða í sæti
  • Eru oft fiktsöm
  • Stöðugt á ferð og flugi
  • Tala mikið og hátt

Hvatvísir einstaklingar geta átt erfitt með:

  • Að bíða,
  • Þeir grípa fram í
  • Ryðjast inn í leik og samræður
  • Tala og framkvæma án þess að hugsa

Greining á ADHD er byggð á mörgum þáttum.

Þroskasaga er mjög mikilvæg, greiningarviðtal, spurningalistar og taugasálfræðilegar athuganir.

Meðferð er ákvörðuð eftir aldri barns og samsetningu fyrrgreindra einkenna.

Helstu meðferðarform eru:

  • Lyfjameðferð
  • Atferlisþjálfun
  • Viðtalsmeðferð
  • Listmeðferð
  • Leikmeðferð
  • Fjölskyldumeðferð
  • Fræðsla fyrir foreldra
  • Hópmeðferð

Þegar einkenni eru væg og skerðing í lágmarki er margt hægt að gera til þess að bæta ástandið.

Til dæmis:

  • Góð samvinna við skóla
  • Aukið utanumhald og skipulag á heimili
  • Draga úr skömmum og auka hrós þegar vel gengur
  • Fá útrás fyrir hreyfiþörf

Ef einkenni eru mikil og skerðing hefur meiri áhrif á daglegt líf, svo sem erfiðleikar í námi og félagstengslum, er mikilvægt að leita sér aðstoðar.

Þeir sem hægt er að hafa samband við eru til dæmis:

  • Umsjónarkennari
  • Námsráðgjafi
  • Skólahjúkrunarfræðingur
  • Heilsugæslulæknir
  • Þjónustumiðstöðvar í Reykjavík eða félags- og skólaþjónusta í öðrum sveitafélögum

Þessir aðilar taka að sér það hlutverk að meta hver næstu skref eru.

Þegar um er að ræða alvarleg einkenni, eins og áhættuhegðun og að stofna lífi sínu eða annarra í hættu, er nauðsynlegt að hafa samband við fagaðila sem fyrst.

Hægt er að hafa samband við:

  • Heilsugæslulækni
  • Sérfræðilækni ef hann er til staðar
  • Bráðamóttöku barna
  • Bráðamóttöku BUGL
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir
Af hverju ekki?