Leit
Loka

Hagnýtar upplýsingar

Við leitumst við að koma til móts við þarfir foreldra ungra barna vegna fyrirhugaðra aðgerða eða rannsókna með því að:

  • Hlusta á foreldrana, gefa upplýsingar og fræða um það sem framundan er
  • Veita stuðning og hlýju og draga eins og hægt er úr kvíða og óöryggi.

Börn á þessum aldri óttast aðskilnað frá foreldri og fjölskyldu.

  • Mikilvægt er því fyrir barnið að mamma eða pabbi verði alltaf til staðar
  • Ekki er ráðlegt að tala um innlögn með löngum fyrirvara
  • 1-2 dögum fyrir innlögn er gott að tala við barnið um Barnaspítalann og starfsfólkið á jákvæðan hátt, og tengja það því sem þarf að gera
  • Barnið er að þróa samskipti við marga og vinna úr þeim
  • Mikilvægt er að fá að tjá með orðum og í leik það sem gert er hverju sinni
  • Börn á þessum aldri kvíða ekki framtíðinni, þau eru mjög sjálfmiðuð og taka einn dag í einu

Börn eru sífellt að auka leikni sína og þekkingu, á þessum aldri kanna þau sjálfstæði sitt og læra að bregðast við hrósi, gagnrýni og stuðningi.

  • Mikilvægt er því að leggja áherslu á að segja satt og rétt frá
  • Það er líka mikilvægt að mamma eða pabbi séu með þegar barnið leggst inn á sjúkrahús
  • Einnig er nauðsynlegt að virða þörf barnsins fyrir fræðslu og undirbúning
  • Það þarf að fá að tjá sig og koma með spurningar og fá svör við “af hverju” á jákvæðan hátt

Mikilvægt er að tilheyra fjölskyldu og vita að mamma eða pabbi eru með og styðja.

  • Undirbúningur miðast við þroska barnsins og getu til að vinna úr þeim upplýsingum sem það fær
  • Börn á þessum aldri eignast fyrirmyndir, ávinna sér leikni og þekkingu og fást við ótta og langanir
  • Þess vegna er mikilvægt að fræða þau og svara spurningum eins og hægt er
  • Þau gera sér grein fyrir því að fullorðnir geta gert mistök og tengja til dæmis raunveruleikann oft því sem þau sjá í sjónvarpi

Mikilvægt er að foreldri veiti stuðning.

  • Undirbúningur og fræðsla fyrir innlögn þarf að vera í samvinnu við barnið sjálft eins og kostur er
  • Taka þarf tillit til þroska þess og getu til að takast á við upplýsingarnar
  • Það þarf að gefa barninu kost á að spyrja spurninga og tjá sig og virða upplifun þess og tilfinningar
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir
Af hverju ekki?