Leit
Loka

Bráðaöldrunarlækningadeild B4

Meginviðfangsefni er greining og meðferð bráðra sjúkdóma hjá öldruðum

Deildarstjóri

Sólbjörg Sólversd. Vestergaard

solbjorg@landspitali.is
Yfirlæknir

Anna Björg Jónsdóttir

annabjon@landspitali.is

Banner mynd fyrir  Bráðaöldrunarlækningadeild B4

Hafðu samband

OPIÐAllan sólarhringinn alla daga

Bráðaöldrunarlækningadeild - mynd

Hér erum við

Fossvogur: B-álma 4. hæð

Sjá staðsetningu á korti

Hagnýtar upplýsingar

Legudeild með 22 rúmi og um 60 starfsmönnum.

Meginviðfangsefni deildarinnar er greining og meðferð bráðra sjúkdóma hjá öldruðum. Oft er í bakgrunninn hrumleiki, færniskerðing eða öldrunarheilkenni sem ný veikindi bætast við. Einnig kunna að koma upp brestir í stuðningskerfi sem gerir hinum aldraða ókleift að dvelja heima.

Sjúklingar koma flestir beint frá bráðamóttöku, bráðalyflækningadeild eða öðrum bráðadeildum. Margir flytjast frá B4 til framhaldsmeðferðar og endurhæfingar á Landakoti. Unnið er að útskrift allra til eigin heimilis eða á hjúkrunarheimili.

Starfsfólk deildarinnar leggur áherslu á góð samskipti við sjúklinga og fjölskyldur þeirra og að veita greinargóðar upplýsingar um sjúkdómsástand, rannsóknir, meðferð, hjúkrun og batahorfur.

Vinsamlega virðið einkalíf annarra sjúklinga og ræðið ekki það sem þið kunnið að verða áskynja um heilsufar þeirra og hagi

  • Sólarhringsdeild
  • Af öryggisástæðum er deildin læst og mikilvægt er að láta vita ef farið er út af deild með skjólstæðing hennar
  • Mest er um að vera á deildinni á morgnana. Þá er veitt aðstoð við persónulega umhirðu, genginn stofugangur og útskriftir undirbúnar
  • Vaktaskipti hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða eru kl. 8:00, 15:30 og 23:00
  • Stofugangur er kl. 9:00 - 11:00
  • Heimsóknartímar eru milli kl.15-18 eða eftir samkomulagi en yfirleitt ekki fyrir hádegi eða eftir kl. 20:00 af tillitssemi við stofufélaga
  • Sjúkraþjálfarar og iðjuþjálfar gegna mikilvægu hlutverki í meðferð, fræðslu og ráðleggingum til sjúklinga
  • Fagfólk útskriftarteymis ráðgjöf varðandi réttindamál, búsetuúrræði og færni og heilsumat
  • Sálfræðingar eru kallaðir til eftir þörfum fyrir sjúklinga og aðstandendur. 
  • Næringarráðgjafar veita fræðslu og ráðgjöf um mataræði
  • Prestar og djáknar sinna sálgæslu sjúklinga, aðstandenda og starfsfólks 
  • Morgunverður um kl. 9:00
  • Hádegisverður um kl. 12:30
  • Miðdegiskaffi um kl. 14:30
  • Kvöldmatur kl. 18:00
  • Kvöldkaffi um kl. 19:30
  • Á setustofu er kæliskápur fyrir sjúklinga.
  • Farsíma má nota en vinsamlega hafið símann stilltan á hljóðlausa hringingu og takið tillit til stofufélaga þegar talað er í síma.
  • Sjúklingar geta fengið aðgang að Netinu gegnum gestanet spítalans
  • Afþreyingartónlist er í útvarpinu á rás 3. Sjónvörp eru á öllum sjúkrastofum.
  • Kvennadeild Rauða kross Íslands rekur verslanir í anddyrum Landspítala
  • Sjúklingar eru beðnir um að láta vita ef þeir hyggjast fara í verslunina, eða af deildinni í öðrum erindagjörðum.
  • Hraðbanki er í anddyri á 1. hæð, sjálfsalar á 2. hæð og við inngang á bráðamóttöku.
  • Guðsþjónustur eru flesta sunnudaga kl.10:00 á fjórðu hæð. Þær eru auglýstar sérstaklega
 

Landspítali er háskólasjúkrahús og þangað kemur ár hvert fjöldi nema í hinum ýmsu starfsgreinum til kennslu og þjálfunar.  Nemendur fylgjast með og taka þátt í daglegri meðferð sjúklinga. Þeir eru alltaf á ábyrgð undir handleiðslu leiðbeinenda sinna.

Þá er unnið umfangsmikið vísindastarf á sjúkrahúsinu.

Sjúklingar eru stundum beðnir um að taka þátt í slíkum verkefnum og eiga þeir þá rétt á ítarlegri upplýsingagjöf um tilgang og framkvæmd verkefnis.

Hverjum og einum er heimilt að neita slíkri þátttöku eða hætta henni hvenær sem er án skýringa.

 

 

Sjúkrahúsdvöl á aldrei að vera lengri en nauðsyn krefur og sjúklingar eiga að jafnaði að fá upplýsingar um útskrift innan sólarhrings frá innlögn.  

Við útskrift á sjúklingur rétt á að fá:

  • Upplýsingar um ástæður innlagnar, meðferð og niðurstöður rannsókna
  • Upplýsingar um áframhaldandi eftirlit ef slíkt er fyrirhugað og hvert á að leita eftir niðurstöðum sem liggja ekki fyrir við útskrift
  • Upplýsingar um hættumerki sem þarf að vera vakandi fyrir eftir heimkomu og hvert á að leita ef vandamál koma upp eftir útskrift
  • Yfirlit yfir þau lyf sem á að taka, skammtastærðir og tímalengd ef við á
  • Lyfseðlar eru sendir rafrænt í lyfjagátt og er hægt að leysa út í hvaða apóteki sem er
Allir sjúklingar eiga að fá armband með nafni og kennitölu.
Upplýsingar á armbandinu eru notaðar til staðfestingar þegar lyf eru gefin, við blóðgjafir og hvers kyns rannsóknir og aðgerðir.
 
Stundum þykir fólki nóg um hversu oft er spurt um kennitölu, ofnæmi, lyf o.s.frv. en allt er þetta gert til að tryggja öryggi.
Best er ef sjúklingar eru vakandi fyrir þessum vinnureglum og minni á ef ekki er farið eftir þeim.
 
Hjálpaðu okkur að tryggja öryggi þitt.

 

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir
Af hverju ekki?