Stómaráðgjöf
Stómahjúkrunarfræðingur sér um ráðgjöf og leiðbeiningar varðandi stóma fyrir stómaþega, væntanlega stómaþega, aðstandendur og heilbrigðisstarfsfólk innan og utan spítalans.
Stómahjúkrunarfræðingur er með móttöku á Landspítala Hringbraut, almennri göngudeild 10E, eftir samkomulagi.
Tímapantanir eru á virkum dögum í síma 824 5982 eða á stoma@landspitali.is.
