Hjartagátt

Hjartagátt er á 10D og 10W á Landspítala Hringbraut.
(frá 13. apríl 2010) 

Sinnir bráðaþjónustu, dagdeildar- og göngudeildarþjónustu við hjartasjúklinga. Á hjartagátt er tekið á móti öllum ef grunur er um bráð hjartavandamál. Til þeirra teljast meðal annars brjóstverkir, mæði af líklegum hjartatoga, hjartsláttartruflanir, yfirlið af líklegum hjartatoga og hjartastopp.

Opið allan sólarhringinn frá klukkan 08:00 á mánudagsmorgni til klukkan 20:00 á föstudagskvöldi.
- Þjónusta um jól og áramót 2010 -

Allir með grun um bráð hjartavandamál fara á bráðamóttöku í Fossvogi frá klukkan 14:00 á föstudögum. Mögulegt verður þó að koma með þá sem eru í hjartastoppi eða STEMI til kl. 19:30 á föstudögum til að flýta fyrir að þeir komist sem fyrst í hjartaþræðingu ef þess er þörf.

Síðast breytt: 17.12.2010 12:10
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli