Gildi
Umhyggja Við berum umhyggju fyrir sjúklingum, samstarfsmönnum og samfélagi okkar. Fagmennska Við höfum fagmennsku, gagnreynda þekkingu og öguð vinnubrögð að leiðarljósi. Öryggi Við leggjum öryggi sjúklinga, starfsmanna og samfélags til grundvallar í allri okkar þjónustu. Framþróun Við leggjum áherslu á framþróun þjónustu, þekkingar og tækni.
Hlutverk
Landspítali er sjúkrahús allra landsmanna, aðalsjúkrahús Íslands og háskólasjúkrahús.
- Landspítali veitir fjölbreytta, almenna og sérhæfða heilbrigðisþjónustu.
- Landspítali er miðstöð menntunar, þjálfunar og rannsókna á sviði heilbrigðisvísinda.
- Landspítali er öryggisnet í eigu og þágu þjóðar.
Framtíðarsýn
Landspítali er í fremstu röð háskólasjúkrahúsa. Sjúklingurinn og öryggi hans eru ætíð í fyrirrúmi.
- Menntun og vísindastarf er í fremstu röð og markvisst unnið að nýsköpun á grundvelli þekkingar.
- Landspítali er eftirsóttur vinnustaður sem veitir hagkvæma og skilvirka þjónustu byggða á bestu þekkingu sem völ er á.
- Reksturinn er gagnsær og innan fjárlaga.
- Bráðastarfsemi verður sameinuð á árinu 2016 í nútímalegu húsnæði við Hringbraut í góðum tengslum við heilbrigðisvísindasvið Háskóla Íslands.
- Landspítali er stolt landsmanna, sjúklinga og starfsmanna.
Markmið 2011-2012
Rekstur innan fjárheimilda Öryggi sjúklinga Skilvirkir verkferlar Góður vinnustaður
Aðgerðir 2011-2012
Við innleiðum starfsáætlun og framkvæmdamenningu í samræmi við stefnu Landspítala. Við setjum okkur markmið og mælum árangur. Þannig taka allir starfsmenn þátt í að gera framtíðarsýn Landspítala að veruleika.
Rekum Landspítala innan fjárheimilda með því að dreifa ábyrgð og valdi, setja skýr og mælanleg markmið, efla kostnaðarvitund og kostnaðarstýringu, meta árangur með markvissri eftirfylgni og endurgjöf, sýna snerpu og taka strax á því sem betur má fara.
Eflum öryggi sjúklinga með skilvirkri þjónustu sem byggir á teymisvinnu, þekkingu, menntun, vísindarannsóknum og reynslu.
Þróum skilvirka verkferla með því að kortleggja og endurhanna mikilvæg ferli. Nýtum öflug upplýsingakerfi til að einfalda verkferla og uppræta margverknað og sóun.
Sköpum góðan vinnustað sem við erum stolt af. Eflum stjórnendur og starfsmenn og búum sameiginlega til vinnustað þar sem er gott að starfa og þróast faglega. Eflum mennta- og vísindastarf til að stuðla að framþróun og tryggja hæft starfsfólk í nútíð og framtíð.
Leiðarljós
Forgangsröðun - Einfaldleiki - Einfaldleiki
| Háskólasjúkrahús: Sjúkrahús sem veitir þjónustu í nær öllum viðurkenndum sérgreinum læknisfræði og hjúkrunarfræði, með áherslu á rannsóknir, þróun og kennslu. Sjúkrahúsið er í nánu samstarfi við háskóla sem sinnir kennslu og rannsóknum í læknisfræði og flestum öðrum greinum heilbrigðisvísinda, svo og eftir atvikum framhaldsskóla. Starfsmenn sjúkrahússins, sem uppfylla tilteknar hæfiskröfur háskóla, gegna störfum bæði á sjúkrahúsinu og við háskólann eða hafa önnur starfstengsl við háskólann. Meðferð sjúklinga, kennsla og rannsóknir eru samþætt í daglegum störfum á sjúkrahúsinu.
(Úr lögum um heilbrigðisþjónustu 2007 nr. 40 27. mars (20. grein) | |