Kapella

 

Kapella líknardeildar í Kópavogi

Kapella líknardeildar er helgur staður sem er hugsaður sem athvarf og skjól fyrir fólk sem dvelur á líknardeild, fjölskyldur þess, starfsfólk og aðra sem leið eiga á deildina. Kapellan er ætíð opin og getur fólk átt þar hljóða stund.

Helgihald fer fram í kapellunni að jafnaði einu sinni í viku í formi kyrrðarstunda sem byggja á kristinni íhugun og bæn. Aðrar samverur eru einnig haldnar í kapellu svo sem jólasöngvar á aðventu og fundir af margvíslegum toga.

Fölskyldur sameinast í kapellunni á sorgarstundum þegar andlát ástvinar hefur borið að og er liður í kveðjustund þeirra á deildinni. Prestur líknardeildar veitir sálgæslu þ.e. andlega og trúarlega þjónustu við sjúklinga, fjölskyldumeðlimi og starfsfólk.

Kapella líknardeildar var vígð við hátíðlega athöfn 6. júní árið 2003. 
Hún var gjöf Oddfellowreglunnar á Íslandi og færð deildinni fullbúin. Ennfremur gaf Guðmundur Breiðfjörð kapellunni andvirði af sölu ljóðabókar hans sem ber heitið ,,Köllun” og Reykjavíkurprófastsdæmi vestra kom með mótframlag. 

Síðast breytt: 03.11.2011 09:05
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli