Innlögn/útskrift
Innlögn
Við ákvörðun innlagnar á líknardeildina er farið eftir biðlista en einnig tekið mið af því hver er í mestri þörf hverju sinni. Reynt er að skipuleggja innlögn fyrri hluta dags ef hægt er. Við innlögn tekur hjúkrunarfræðingur eða sjúkraliði á móti og vísar til stofu. Teknar eru hjúkrunarupplýsingar og læknisfræðilegar upplýsingar eftir komu á deild. Lengd innlagnar fer eftir ástæðum innlagnar, líðan og aðstæðum hvers sjúklings.
Sjúklingar sem leggjast inn þurfa að hafa með sér góða inniskó, náttslopp, tannbursta og tannkrem sem og aðrar persónulegar snyrtivörur. Hægt er að fá nátttreyjur og nærföt en vilji fólk vera í sínum eigin fötum er það velkomið en þau föt þarf að þvo heima. Sjúklingar eru hvattir til að klæðast eigin fötum yfir daginn.
Útskrift
Oft er við innlögn áætlaður útskriftartími. Undirbúa þarf útskrift með nokkrum fyrirvara, sérstaklega ef þörf er á aðstoð heim s.s. frá sérhæfðri heimaþjónustu eða heimahjúkrun.
Útskriftarfundir eru haldnir með fjölskyldumeðlimum ef þurfa þykir.