Barnageðdeild

Staðsetning

Dalbraut 12 en stendur í reynd við Leirulæk. Ekið er inn frá Laugalæk.

Símanúmer deildar: 543-4310 og 543-4358 

Um deildina

Deildin er dagdeild og er lokuð um helgar og almenna frídaga. Eins lokar hún í nokkrar vikur yfir sumartímann. Deildin er ætluð börnum að 13 ára aldri, sem þurfa tímabundið annars konar þjónustu en hægt er að veita í nærumhverfi fjölskyldu eða á göngudeild BUGL. Deildin hefur á að skipa átta rúmum.

Starfsfólk deildarinnar

Við deildina er teymi sem er skipað deildarstjóra, barna- og unglingageðlækni, deildarlækni, sálfræðingi, félagsráðgjafa og hjúkrunarfræðingi. Teymið stjórnar faglegri vinnu á deildinni og ákvarðar innlagnir og útskriftir. Annað starfsfólk eru m.a. sjúkraliðar, þroskaþjálfar og ráðgjafar sem hafa fjölbreytta menntun og reynslu, auk starfsmanns í eldhúsi.

Meðferð á deildinni

Á deildinni fer fram fjölskyldu,- umhverfis,- hóp- og einstaklingsmeðferð. Gerð er einstaklingsmiðuð meðferðaráætlun fyrir hvert barn í tengslum við svokallað ,,Stafakerfi”. Á meðan barnið dvelur á deildinni er lögð áhersla á virka þátttöku foreldra/forráðamanna. Gagnlegt getur verið að hluti meðferðarinnar fari fram í því umhverfi sem barnið býr í og því stendur heimaþjónusta frá deildinni fjölskyldum til boða.

Þarfir og fyrirkomulag er metið hverju sinni í samráði við foreldra/forráðamenn. Börnin ganga ýmist í Brúarskóla við Dalbraut eða halda áfram í sínum heimaskóla á innlagnartíma.Heimsóknar- og símatímar

Heimsóknar- og símatímar

Viðvera foreldra/forráðamanna á deildinni er skipulögð í samráði við hjúkrunarfræðing og ráðgjafa barns.

Nánar um deildina í upplýsingariti barnageðdeildar BUGL (PDF)

 

 

Síðast breytt: 15.01.2010 09:58
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli