Fimmdagadeild
ATH! Deildin er lokuð til áramóta 2011-2012
Fimm daga deild líknardeildar var opnuð í september 2007 og er staðsett í húsi nr. 9 við hlið líknardeildarinnar. Hún var vígð í september 2007 og komið á fót með sameiginlegu átaki LSH og Oddfellowreglunnar á Íslandi
sem lagði fé til uppbyggingar deildarinnar. Í sama húsnæði er dagdeild líknardeildar sem og göngudeild.
Fimm daga deildin er opin frá mánudegi til föstudags. Þar eru fjögur legurými. Innlagnir eru til hvíldar,
endurhæfingar og einkennameðferðar. Á deildinni starfar þverfaglegt teymi þar sem saman vinna hjúkrunarfræðingar, sjúkraliðar, læknar, sjúkraþjálfi og listmeðferðarfræðingur ásamt öðru starfsfólki í býtibúri og ræstingu.
Fimm daga deildin er ætluð sjúklingum með ólæknandi langt genginn sjúkdóm sem dvelja heima eða eru á leið heim eftir langa sjúkrahúsdvöl. Lagt er upp með að sjúklingar dvelji í 1-3 vikur frá mánudegi til föstudags. Helstu ástæður innlagna eru til hvíldar fyrir sjúkling eða aðstandendur og til endurhæfingar og einkennameðferðar.
Sækja þarf um innlögn á fimm daga deild með því að senda innlagningarbeiðni.
Fimm daga deild líknardeildar
Hús nr. 9
Kópavogsbraut 5-7
200 Kópavogur
Náin samvinna er við líknarráðgjafateymi LSH, heimahlynningu sem hefur aðsetur á neðri hæð líknardeildar og hjúkrunarþjónustuna Karítas.