Dagdeild

Dagdeild líknardeildar er hugsuð sem stuðningur við þá skjólstæðinga sem eru með ólæknandi langvinnan sjúkdóm og dvelja heima. Sjúklingar fá þjónustu heima, oftast hjá sérhæfðri heimaþjónustu,  heimahlynningu LSH eða hjúkrunarþjónustunni Karítas.  Lögð er áhersla á forvarnarstarf, meðferð og eftirlit einkenna ásamt endurhæfingu til að viðhalda sjálfsbjargargetu og stuðla að sem mestum lífsgæðum.

Opið er tvo virka daga (þriðjudag – fimmtudag) kl. 9:00-15:30. Í boði er dvöl 1-2 dag í viku 12 vikur í senn. Ef þörf er á lengri dvöl er það metið hjá hverjum og einum.

Á deildinni starfar þverfaglegt teymi hjúkrunarfræðings, sjúkraliða, sjúkraþjálfara og listmeðferðarfræðings. Teymið vinnur í samstarfi við lækna líknardeildar, félagsráðgjafa, prest og sálfræðing. Hjúkrunarfræðingur heldur utan um daglega starfsemi deildarinnar.

Dagdeild líknardeildar var opnuð í september 2007. Henni var komið á fót með sameiginlegu átaki LSH og Oddfellowreglunnar sem lagði til fé til uppbyggingarinnar. 

Sækja þarf um dvöl á dagdeild með því að senda beiðni á:

Dagdeild líknardeildar
Hús nr. 9
Kópavogsbraut 5-7
200 Kópavogur

Náin samvinna er við líknarráðgjafateymi LSH, heimahlynningu sem hefur aðsetur á neðri hæð líknardeildar og hjúkrunarþjónustuna Karítas.

Síðast breytt: 03.11.2011 10:01
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli