Líknardeild Kópavogi
Kópavogsbraut 5-7
200 Kópavogur
Staðsetning deildarinnar á korti.
Deildarstjóri er Dóra Halldórsdóttir
Yfirlæknir er Valgerður Sigurðardóttir
Sími líknardeildar er 543 6602 og 543 6605
Líknardeildin í Kópavogi er hugsuð fyrir tímabundna innlögn fólks með ólæknandi, langt genginn sjúkdóm og skertar lífslíkur þar sem læknanlegri meðferð hefur verið hætt og öll meðferð (krabbameinsmeðferð eða önnur) miðast að því að fyrirbyggja eða lina einkenni og draga úr líkamlegri, sálfélagslegri og andlegri þjáningu. Flestir sjúklinganna eru með krabbamein. Markmiðið er að bæta lífsgæði sjúklinganna og fjölskyldna þeirra.
Líknardeildin er opin allan sólarhringinn alla daga ársins. Þar er gott útsýni til sjávar og góðar gönguleiðir í nágrenninu. Deildin hóf starfsemi í apríl 1999. Henni var komið á fót með sameiginlegu átaki LSH og Oddfellowreglunnar á Íslandi sem ákvað í tilefni af 100 ára afmæli reglunnar að veita fé til uppbyggingar líknardeildar í Kópavogi. Í húsnæði samhliða legudeildinni er dag- og fimm daga deild sem og göngudeild sem opnaðar voru í september 2007, einnig með stuðningi Oddfellowreglunnar.
- Á líknardeildinni er heimilislegt umhverfi og reynt að mæta þörfum sjúklings og fjölskyldu hans eins og framast er unnt. Veitt er læknis- og hjúkrunarþjónusta, endurhæfing og sálgæsla sem og félagsráðgjöf og annar stuðningur ef þörf er á. Deildin skiptist í 8 rúma legudeild, fimm daga deild, dagdeild og göngudeild. Í sama húsi hefur Heimahlynning aðsetur.
- Á deildinni eru 6 einbýli og 2 tvíbýli. Snyrtingar eru milli herbergja. Hægt er að geyma verðmæti í læstum skáp hjá starfsfólki en eindregið er mælst til þess að vera ekki með mikil verðmæti á stofum. Áhersla er lögð á teymisvinnu og fjölskylduhjúkrun þar sem unnið er markvisst að því að veita heildræna einstaklingsmiðaða þjónustu til skjólstæðinga og fjölskyldna þeirra og starfa hinar ýmsu starfsstéttir náið saman.
Helstu ástæður innlagna á líknardeild:
Áhersla er á teymisvinnu starfsfólks og lögð áhersla á góð samskipti og samvinnu við sjúklinginn og fjölskyldu hans. |
Matmálstímar
Maturinn á líknardeildinni kemur frá eldhúsi LSH. Hádegismatur er kl. 12:00-13:00, kvöldmatur kl. 18:00-19:00. Þess á milli er kaffitími um kl. 15:00 og kvöldhressing um kl. 20:00. Tími morgunmatar er sveigjanlegur. Aðstandendum er velkomið að koma með mat fyrir sjúkling. Möguleiki er að geyma merktan mat í ísskáp í borðstofu. Hægt er að panta sérfæði s.s. grænmetisfæði.
Heimsóknartímar
Heimsóknartímar á líknardeildina eru opnir en reynt er að hafa hvíldartíma milli kl. 13:00 og15:00 og að ekki sé mikill gestagangur eftir kl. 21:00 á kvöldin. Húsinu er læst á kvöldin en hægt er að hringja dyrabjöllu. Mælst er til þess að fjöldi heimsóknargesta sé innan skynsamlegra marka hjá hverjum og einum.
Aðstandendur geta fengið keyptan mat úr eldhúsi LSH en panta þarf hádegismat fyrir kl. 10:00 að morgni og kvöldmat fyrir kl. 16:00. Starfsfólk í eldhúsi og ritari sér um pöntun.
Aðstandendur geta verið hjá sjúklingi yfir daginn og möguleiki er á að gista yfir nótt á bedda á stofu sjúklings.
Afþreying
Á hverri stofu er sjónvarp og DVD spilari. Aðgangur er að Sjónvarpinu og Stöð 2. Netaðgangur er á stofum en sjúklingar þurfa að koma með sína eigin tölvu. Bókaskot er undir stiga á kapellugangi með nokkru úrvali bóka. Tvö dagblöð koma á deildina. Margir sjúklingar eru með sína eigin GSM síma en á deildinni er þráðlaus sími sem hægt er að fara með milli stofa ef þörf er á. Mælst er til þess að aðstandendur hafi GSM síma sína stillta á hljóðlátt (silence) og tali ekki í síma á gangi og í setustofu deildarinnar. Hægt er að fara í fundarherbergi, bókarskot undir stiga eða út.
| Starfið á líknardeildinni í Kópavogi, fyrstu sérhæfðu líknardeildinni á Íslandi, grundvallast á skilgreiningu Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO) frá 2002 um líknarmeðferð:
Líknarmeðferð er meðferð sem miðar að því að bæta lífsgæði sjúklinga og fjölskyldna þeirra sem eru með lífshættulega sjúkdóma og felst meðferðin í að fyrirbyggja og draga úr líkamlegri, sálfélagslegri og andlegri þjáningu. Líknarmeðferð á við snemma á veikindatímabilinu samhliða annarri meðferð (krabbameinslyfjum og geislum) sem notuð er til að lina einkenni en jafnframt að lengja líf. |